Byggðavegur 116

600 Akureyri

Ásett verð: 105.000.000 kr.

Byggðavegur 116
Tegund
Einbýlishús
Stærð
218,6 m²
Herbergi
6
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
1955
Fermetraverð
480.329 kr.

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - gunnar@kaupa.is

Byggðavegur 116 - Fallegt einbýlishús á góðum stað á Brekkunni með bílskúr og góðum garði - stærð 218,6 m².

Eignin skiptist í forstofu, hol, tvær stofur, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, snyrtingu, þvottahús, bílskúr og rúmgóða geymslu í kjallara sem hefur verið notuð sem svefnherbergi

Nánari lýsing:

Forstofan er með flísum, þar er opið fatahengi og skápur, við forstofu er svo rúmgott hol og falleg teppalögð stigauppganga.

Stofurnar eru tvær samliggjandi með parketi á gólfum og stórum gluggum sem gera rýmin björt og notaleg. Úr annarri stofunni er gengið út á afgirta timburverönd og þaðan út í garð.

Eldhúsið er með dúk á gólfi, gamalli innréttingu með mikklu skápaplássi, borðkrók og opnanlegum glugga.

Svefnherbergin eru þrjú á efri hæð, öll með plastparketi á gólfum. Fataskápar eru í öllum herbergjum og útgengt er á svalir úr tveimur herbergjanna.

Baðherbergið er á efri hæð með flísum á gólfi, baðkari, lítilli innréttingu með handlaug, wc og opnanlegum glugga.

Snyrting er á neðri hæð í holinu, þar eru flísar á gólfi, wc, handlaug og gluggi.

Þvottahúsið er mjög rúmgott í kjallara með innréttingu, vaski og vinnuaðstöðu.

Fjölnotarými í kjallara er stórt og getur nýst vel sem sjónvarpsherbergi, tómstundaherbergi, vinnuaðstaða eða aukasvefnrými.

Bílskúrinn er skráður 21,7 m² með góðri lofthæð, geymsluaðstöðu og gamalli hurð.

Garðurinn er gróin og rúmgóður, mikið er um gróður og verður hann einstaklega fallegur á sumrin.

Annað:

- Nýlegur gluggi er í stofu á suður hlið

- Frábær staðsettning miðsvæðis á Akureyri þar sem stutt er í skóla, sundlaug, Glerártorg og miðbæinn

- Frábær garður, vel gróin og rúmgóður

Nánari upplýsingar veitir:

Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á gunnar@kaupa.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.