Orkureiturinn A 701

108 Reykjavík

Ásett verð: 269.000.000 kr.

Orkureiturinn A 701
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
182,5 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Byggingarár
2024
Fermetraverð
1.473.973 kr.

Lýsing

Jason Kristinn s. 7751515 á Betri Stofunni og Safír byggingar ehf kynna með stolti Orkureitinn . Íbúð 701. Glæsileg ný, 213,5 fm 4ra herbergja úsýnisíbúð á Orkureitnum. 31 fm bílskúr í bílakjallara fylgir með. Gólfhiti, gólfsíðir gluggar og aukin lofthæð. Stór stofa. Hjónasvíta með baðherbergi og fataherbergi. Þaksvalir í norður og vestur, heitur pottur og möguleika á saunu. Stórfenglegt útsýni, sjón er sögu ríkari. Linkur á íbúð Íbúðin er fullbúin með fallegu parketi, hljóðdúk í lofti, lýsingu og vönduðum tækjum í eldhúsi.

SÝNUM SAMDÆGURS

Heimasíða Orkureitsins

Flæði íbúðar:

Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu í alrými, hjónasvítu með fataherbergi og sérbaðherbergi, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Tvennar svalir. Vestur- og norðursvalir, 48 fm þakgarðssvalir, sem útgengt er á úr stofu og frá gangi, með glæsilegu fjalla- og sjávarútsýni. Austursvalir (5,2 fm) sem útgengt er á úr svefnherbergi með útsýni yfir glæsilegan inngarð. Sér þvottahús með innréttingu.

Sérgeymsla (16,5 fm) er í kjallara hússins. Þá fylgir íbúðinni jafnframt 31,2 fm bílskúr í bílakjallara.

Nánar um Orkureitinn:

Bjartar og vel hannaðar íbúðir. Á Orkureitnum verða byggðar 436 glæsilegar íbúðir þar sem lögð er alúð við að byggja upp framtíðarheimili þar sem vellíðan íbúa er höfð að leiðarljósi. Við hönnun íbúða er lögð megináhersla á vönduð byggingarefni, hagnýtt skipulag, góða birtu og útsýni. Hver íbúð hefur eigin búnað til loftskipta sem hámarkar loftgæði.

Stórt bílastæðahús er tengt byggingum neðanjarðar en auk þess eru verslunar- og þjónusturými á jarðhæð með fjölbreyttri þjónustu við íbúa eins og veitingahús og kaffihús Fyrsta áfanga (A-húsi) er lokið en áformað er að allri uppbyggingu á svæðinu verði lokið í lok árs 2027.

Nánari upplýsingar veita sérfræðingar Betri Stofunnar:

Jason Kristinn Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 775-1515 - tölvupóstur: jason@betristofan.is

Guðbjörg Guðmundsdóttir , í síma 899-5533, tölvupóstur gudbjorg@betristofan.is.