Laufrimi 34
112 Reykjavík
Ásett verð: 69.900.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 99,7 m²
- Herbergi
- 3
- Svefnherbergi
- 2
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 1995
- Fermetraverð
- 701.103 kr.
Lýsing
** Opið hús mánudaginn 23. nóvember frá kl. 16:30 til 17:00 - Íbúð 301 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 **
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Björt og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð með sérinngangi af opnum svalagangi á 3. hæð (efstu) við Laufrima 34 í Grafarvogi. Eignin er skráð 99,7 m2, þar af íbúð 91,8 m2 og geymsla 7,9 m2. Íbúðin skiptist í forstofu, hol, stofu/borðstofu eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Sérgeymsla er í sameign á jarðhæð. Svalir með fallegu útsýni í suðurátt. Stutt er í alla helstu þjónustu, Spöngina, Egilshöll, leik-, grunn- og framhaldsskóla en einnig er golfvöllur stutt frá. Göngustígur liggur frá húsinu að Rimaskóla og þarf því ekki að fara yfir götu á leiðinni til grunnskóla.
Sameiginleg hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla er á bílastæði fyrir Laufrima 32-34. Húsið er allt nýmálað að utan og þakið líka (sumar 2026).
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax
Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Hol er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og fasksápum.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með innréttingu, handlaug, salerni, sturtu og handklæðaofni.
Þvottahús er innan íbúðar með flísum á gólfi.
Eldhús er með U-laga innréttingu og flísum á gólfi. Í innréttingu er vaskur, helluborð og bakaraofn. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu.
Stofa/borðstofa er með parketi á gólfi. Úr stofu er útgengt á svalir með fallegu útsýni í suðurátt.
Sérgeymsla er á jarðhæð, skráð 7,9 m2.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð.
Verð kr. 69.900.000,-