Hestamýri 2 íbúð 211

225 Garðabær

Ásett verð: 86.900.000 kr.

Hestamýri 2 íbúð 211
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
98,2 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
2024
Fermetraverð
884.929 kr.

Lýsing

Háborg fasteignasala og Katla kynna með stolti glæsilega 2ja herbergja endursöluíbúð á 2. hæð við Hestamýri 2B á Álftanesi.

Um er að ræða einstaklega vel skipulagða og bjarta 2ja herbergja íbúð, samtals 98,2 fm , í nýlegu lyftuhúsi, þar af 17,9 fm geymslu í kjallara og 8,5 fm svalir . Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði í bílakjallara, merkt B12 .

Íbúðin er til sölu vegna búferlaflutninga eiganda erlendis og gefst því gott tækifæri til að eignast fullbúna og vandaða eign í nýlegu húsi , án biðar. Eignin er sérstaklega áhugaverð fyrir þá sem vilja kaupa í nýbyggingu á hagstæðara verði en sambærilegar íbúðir í verkefninu , auk þess sem íbúðin nýtur mjög góðrar legu til suðvesturs .

Íbúðin hefur verið hönnuð af innanhúshönnuði og skartar vönduðum, sérsmíðuðum innréttingum frá Parka, quartz borðplötum , ítölskum flísum frá Porcelanosa og 12 mm harðparketi . Gólfhiti er í öllum rýmum og loftskiptikerfi með varmaendurvinnslu tryggir aukin þægindi og orkusparnað. Húsið er klætt með álklæðningu og bambus harðvið og í kjallara er sameiginleg hjóla- og bílageymsla.

Nánari lýsing á eign nr. 211

Forstofa / gangur

Komið er inn í rúmgóða forstofu sem tengir saman öll rými íbúðarinnar. Þar er góður fataskápur og fallegt harðparket á gólfi. Góð lofthæð og skýrt skipulag gefa íbúðinni hlýlegt og fallegt yfirbragð strax við inngang.

Alrými – stofa, borðstofa og eldhús, 36,7 fm

Bjart og opið alrými með gólfsíðum gluggum sem hleypa mikilli birtu inn í rýmið. Útgengt er út á 8,5 fm svalir. Rýmið skiptist vel upp í stofu, borðstofu og eldhús með eyju. Vandaðar innréttingar frá Parka, quartz borðplötur og heimilistæki frá Ormsson setja sterkan svip á rýmið.

Eldhús

Eldhúsið er fallega hannað með sérsmíðuðum innréttingum frá Parka í melamín hnotuáferð sem gefur því hlýlegt og stílhreint yfirbragð. Borðplötur og plata milli efri og neðri skápa fyrir ofan vask eru úr White Tech Grain quartz frá Stone Italiana , sem er bæði endingargott og glæsilegt efni. Í eldhúsinu er undirlímdur vaskur með blöndunartæki frá Grohe .

Tækin eru frá Ormsson og þar má nefna spanhelluborð, blástursofn með sjálfhreinsibúnaði og kjöthitamæli, uppþvottavél, innbyggðan ísskáp og gufugleypi.

Svefnherbergi

Rúmgott svefnherbergi með góðu skápaplássi og gólfsíðum gluggum. Harðparket er á gólfi.

Baðherbergi

Fallegt baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með ítölskum flísum frá Porcelanosa. Þar er sturta með glerþili, upphengt salerni og vaskinnrétting með quartz borðplötu.

Þvottahús

Sér þvottahús með flísalögðu gólfi, góðri innréttingu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara ásamt hillum og skápum.

Helstu kostir Endursala í nýbyggingu

Til sölu vegna búferlaflutninga eiganda erlendis

Hagstæðara verð en á sambærilegum íbúðum í verkefninu

Mjög góð lega til suðvesturs

Bjart og opið alrými með gólfsíðum gluggum

Vandaðar sérsmíðaðar innréttingar frá Parka

Quartz borðplötur og hágæða efnisval

Ítalskar flísar frá Porcelanosa

Gólfhiti í öllum rýmum

Loftskiptikerfi með varmaendurvinnslu

Sérmerkt bílastæði í bílakjallara

17,9 fm geymsla í kjallara

Fullbúin eign, tilbúin til afhendingar

Falleg og afar vönduð eign fyrir vandláta, staðsett í einstaklega rólegu og fjölskylduvænu hverfi á Álftanesi. Stutt er í leikskóla, skóla, sund, íþróttaaðstöðu og fallega strandlengju.

Pantið skoðun og fáið nánari upplýsingar hjá Katlu Hönnu Steed, löggiltum fasteignasala, í síma 822-1661 eða á netfangið katla@haborg.is