Fákafen 15

581 Siglufjörður

Ásett verð: 6.000.000 kr.

Fákafen 15
Stærð
81 m²
Herbergi
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Byggingarár
1980
Fermetraverð
74.074 kr.

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Fákafen 15 - Um er að ræða 14-15 hesta hús á Siglufirði.

Eignin er skráð 81,0 m² að stærð og var byggð árið 1980.

Eignin skiptist í 7 stíur, gang, hnakkageymslu og hlöðu.

Gólf í hesthúsinu er steypt og milligerði eru vönduð, ryðfrí og með plast borðum á milli.

Hnakkageymsla er með steyptu gólfi og þar er rafmagnsofn.

Búið er að byggja við húsið til vesturs hlöðu, einangruð og með möl í gólfi. Fermetrar í hlöðu eru ótaldir í heildar fermetrafjöld eignar.

Annað

- Útsogsblásari er staðsettur upp mæni.

- Rafmagnskynding, sér mælir og kalt rennandi vatn.

- Milligerðin voru endurnýjuð á árunum 2008 - 2012

- Húsið er sambyggt með Fákafeni númer 13 og 17

- Eignarhlutur í húsinu er 39,65 %

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.