Njálsgata 59

101 Reykjavík

Ásett verð: 79.000.000 kr.

Njálsgata 59
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
102,7 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1960
Fermetraverð
769.231 kr.

Lýsing

Borgir s. 588-2030 kynna:

4 herbergja íbúð á 3ju hæð í 4. hæða blokk á Njálsgötunni nálægt horni við Barónsstíg.

3 svefnherbergi, góð stofa og rúmgott eldhús.

Búið að endurnjýja húsið að utan að hluta.

Lýsing:

Komið er í gott hol með skápum.

Frá holi er gengt í gott eldhús með eldri innréttingum og borðkrók. Gluggi í suður.

Við hliðina á eldhúsi er svo björt og góð stofa sem snýr í suður með frönskum svölum ( Hurð út með rimlum fyrir að utan).

(Kannski möguleiki að bæta við herbergi með því að færa eldhúsið inn í stofu).

Hol opnast svo líka í svefnálmu þar sem eru 3 svefnherbergi og baðherbergi.

Fyrst er hjónaherbergi með skápum og þar gengt út á norður svalir. Dúkur á gólfi.

Síðan koma 2 minni svefnherbergi með gluggum í norður og þar korkur á gólfi.

Gengt svefnherbergjum er svo flísalagt baðherbergi með baðkari og innréttingu.

Gólfefni eru eldra parket, korkur og dúkur.

Stigagangur er teppalagður.

Sér geymsla í kjallara með hillum (innst á gangi).

Sameiginlegt þvottahús í kjallara eitt fyrir 4 íbúðir á vestur hlið og hitt fyrir austur íbúðir.

Útgengt í aflokaðan bakgarð.

Lagnir undir húsinu fóðraðar fyrir ca ári.

Síðasta sumar voru suður og austur hlið hússins að utan endurnýjaðar. Eftir að vinna í norðurhlið.

Skýrsla Verkfræðistofu um framkvæmdir í sumar liggur fyrir.

Seljendur hafa þegar greitt fyrir framkvæmda kostnað.

Nánari upplýsingar veitir Ægir s. 896-8030 eða aegir@borgir.is