Eyravegur 48

800 Selfoss

Ásett verð: 43.900.000 kr.

Eyravegur 48
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
71,9 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
2006
Fermetraverð
610.570 kr.

Lýsing

Trausti fasteignasala og Viktoría Larsen löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu virkilega fallega​​​​ ​​​og rúmgóða 2ja herbergja íbúð á 2.hæð að Eyravegi 48, 800 Selfossi. Íbúðin skiptist í forstofu, herbergi, baðherbergi, stofu, eldhús og þvottaherbergi. Harðparket á gólfum og flísar á forstofu, baði og þvottaherbergi. Eignin er í lyftuhúsi með sérinngangi af sameiginlegum svölum.

***BÓKIÐ SKOÐUN***

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 71,9 fm. og þar af er geymsla skráð 6 fm.

Nánari lýsing.

Forstofa með hurð inn í íbúðarými, fataskápur upp í loft, flísar á gólfi.

Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum upp í loft, parket á gólfi.

Eldhús er opið við stofu með ljósri viðarinnréttingu, parket á gólfi.

Stofa og eldhús mynda eitt alrými, parket á gólfi. Útgangur er út á suðvestur svalir með útsýni.

Baðherbergi er með innréttingu, upphengdu salerni og baðkari með sturtu aðstöðu, flísar á gólfi.

Þvottahús er innan íbúðar með innangengt frá baðherbergi, skolvaskur og borð, flísar á gólfi.

Geymsla íbúðar er í sameign á jarðhæð hússins.

Húsið er álklætt að utan með viðarklæðningu að hluta og næg bílastæði eru á lóðinni. Grasfletir eru að aftan og til hliðar.

Sameiginleg vagna og hjólageymsla í sameign.

Vel skipulögð eign í góðu hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslun og þjónustu.

Allar nánari upplýsingar um eignina veita:

Viktoría R. Larsen, Löggiltur fasteignasali í síma 618-5741 eða á netfanginu viktoria@trausti.is