Laugavegur 86-94 403

101 Reykjavík

Ásett verð: 77.500.000 kr.

Laugavegur 86-94 403
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
58,3 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
2006
Fermetraverð
1.329.331 kr.

Lýsing

Jason Kristinn sími 7751515 - netfang jason@betristofan.is og Betri Stofan fasteignasala kynna: Bjarta og rúmgóða íbúð á 4. hæð (efstu) í góðu lyftuhúsi. Svalir í átt að Laugavegi með útsýni í átt að Esju. Eignin skiptist í anddyri, þvottaherbergi, baðherbergi, svefnherbergi, svalir, eldhús, geymslu. Sameiginlegar svalir eru á efstu hæðinni í vesturenda.

Laus við kaupsamninga og íbúðin selst fullbúin með húsgögnum.

Komið er inn í anddyri með marmara á gólfi.

Á vinstri hönd er þvottahús með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Baðherbergi er rúmgott með stórum sturtuklefa og marmara á gólfi og veggjum. Stór speglaskápur með miklu geymsluplássi.

Eldhús, stofa og borðstofa eru samliggjandi með parketi á gólfum. Síðir gluggar veita mikla birtu inn í rýmið.

Eldhús innrétting er úr eik með uppþvottavél, bakaraofni og helluborði.

Svefnherbergi er með fataskápum og parketi á gólfi. Stór gluggi veitir mikla birtu inn.

Svalir eru hellulagðar og með glerþakskyggni.

Geymsla íbúðar er á stigagangum við hlið íbúðar, innangengt.

Lyfta er í húsinu sem nær niður í bílastæðakjallara Reykjavíkuborgar

Bílastæði á baklóð fylgir íbúðinni en þau eru í óskiptri sameign.

Nánari upplýsingar veita:

Jason Kristinn Ólafsson, fasteignasali sími 775-1515 - jason@betristofan.is og

Þórhallur Bieirng, fasteignasali sími 896-8232 - thorhallur@betristofan.is