Bjarkardalur 21

260 Reykjanesbær

Ásett verð: 72.500.000 kr.

Bjarkardalur 21
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
104 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
0
Byggingarár
2023
Fermetraverð
697.115 kr.

Lýsing

eignasala.is kynnir eignina Bjarkardalur 21, 260 Reykjanesbær, nánar tiltekið eign merkt 02-03, fastanúmer 253-0411 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin Bjarkardalur 21 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 253-0411, birt stærð 104.0 fm.

EIGNASALA.IS KYNNIR – BJARKARDALUR 21C, 260 REYKJANESBÆ

Björt og sérlega vel skipulögð 108,2 m² fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð með SÉRINNGANGI, þremur svefnherbergjum, 17,4 m² verönd, gólfhita, sérgeymslu og sérnotabílastæði.

BÓKIÐ SKOÐUN – VIÐ FINNUM TÍMA SEM HENTAR ÞÉR!

Eignin er í nýlegu tveggja hæða fjölbýlishúsi, byggðu árið 2023, á góðum stað í Innri-Njarðvík. Íbúðarrýmið er 104,0 m² og sérgeymsla 4,2 m², samtals 108,2 m².

Íbúðin skiptist í anddyri, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og bjart og rúmgott alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa tengjast saman. Stórir gluggar setja svip sinn á alrýmið og þaðan er útgengt á 17,4 m² verönd.

NÁNARI LÝSING

Anddyri: Flísar á gólfi og innbyggður fataskápur.

Eldhús: Stílhrein viðarlituð innrétting með góðu skápaplássi. Eldhúseyja með helluborði og skúffum, innbyggður bakarofn, ísskápur og uppþvottavél.

Stofa og borðstofa: Bjart og rúmgott opið alrými með eldhúsi. Stórir gluggar og útgengt á verönd.

Svefnherbergi: Þrjú talsins og fataskápar í þeim öllum.

Baðherbergi: Flísalagt á gólfi og við votrými. Viðarlituð innrétting, speglaskápur, upphengt salerni og sturta með glerþili. Góð skápainnrétting.

Gólfefni: Parket á meginrýmum og flísar í anddyri og á baðherbergi. Gólfhiti er í íbúðinni.

Verönd: 17,4 m² verönd með útgengi úr alrými íbúðarinnar.

Sérgeymsla: 4,2 m² sérgeymsla í sérstöku geymslurými á lóð.

Eigninni fylgir eitt sérnotabílastæði auk þess sem sameiginleg bílastæði eru á lóð.

Bjarkardalur 21 er tveggja hæða steinsteypt fjölbýlishús með sex íbúðum, byggt árið 2023. Útveggir eru einangraðir að utan og klæddir og gluggar og útihurðir eru úr ál-tré. Gólfhiti er í íbúðum og vélræn loftræsting í lokuðum rýmum.

Góð staðsetning í fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í skóla, íþróttaaðstöðu og aðra þjónustu.

Helstu kostir eru þrjú svefnherbergi, sérinngangur, rúmgott og bjart alrými, gólfhiti, 17,4 m² verönd, sérgeymsla og sérnotabílastæði.

BÓKIÐ SKOÐUN – VIÐ SÝNUM

Júlli – 899 0555, Jói – 864 9677, Bjarni Fannar – 773 0397, Reynir – 777 0915, Skúli – 898 7209

EIGNASALA.IS – Hafnargata 90a, Keflavík

tölvupóstur julli@eignasala.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 43.400 með vsk.