Naustavör 60

200 Kópavogur

Ásett verð: 139.900.000 kr.

Naustavör 60
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
112,2 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2024
Fermetraverð
1.246.881 kr.

Lýsing

Fasteignasalan TORG kynnir: Glæsilegt 3ja herbergja íbúð á 2. hæð merkt 213 með sjávarútsýni í nýju glæsilegu álklæddu lyftihúsi við Naustavör 60. Íbúðin er skráð 112,2 fm og þar af er sérgeymsla skráð 8,2 fm. Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir með merkt. B-04. Góðar vestur svalir fylgja íbúðinni. Naustavör 60-66 er nýtt 4 hæða fjölbýlishús sem er frábærlega vel staðsett í nýju bryggjuhverfi við Kársnes í Kópavogi og snýr vel með tilliti til útsýnis og sólar. Traustur byggingaaðili Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. Allar nánari upplýsingar og skoðun veitir Sigríður Rut Stanleysdóttir löggiltur fasteignasali í gsm. 699-4610 e ða siggarut@fstorg.is og Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 / Helgi@fstorg.is

Nánari lýsing:

Komið er inn í forstofu með góðum fataskáp.

Eldhús með fallegri innréttingu og vönduðum AEG eldhústækjum. Borðplötur Virgo Quartz steini frá S. Helgasyni.

Opið eldhús og stofurými. Útgengt frá stofu út á vestur svalir með glæsilegu sjávarútsýni.

Hjónaherbergi I með góðu skápaplássi.

Svefnherbergi II með fataskáp.

Baðherbergi með fallegri innréttingum með kvartssteini á borðum, flísalagðri sturtu með glerþili, innbyggðum vönduðum blöndunartækjum frá Tengi. Flísalagt í hólf og gólf.

Allar innréttingar eru sérsmíðar af Brúnás. Sýnilegar hliðar og hurðir verða spónlagðar eða sprautulakkaðar. Raftæki sem fylgja koma frá Bræðrunum Ormsson. Virgo Quartz stein frá S.helgasyni er á borðum á baðherbergjum og eldhúsi.

Þvottaherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkarar. Flísalagt gólf. Innrétting frá Brúnás.

Allar innihurðar frá Parka. Íbúðin skilast með gólfefnum á baði og þvottaherbergi en að öðru leyti án gólfefna.

Í kjallara er stæði í lokaðri bílageymsla og góð sérgeymsla fylgir íbúðinni í kjallara.

Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara. Fallegur frágangur. Sjá nánar í skilalýsingu.

Allar nánari upplýsingar og skoðun veitir Sigríður Rut Stanleysdóttir löggiltur fasteignasali í gsm. 699-4610 eða siggarut@fstorg.is og Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 / Helgi@fstorg.is

Íbúðin skilast samkvæmt skilalýsingu

1. Frágangur innanhúss íbúða

1.1. Gólfefni Íbúðin sjálf verður afhent án gólfefna, nema á baðherbergi og þvottahúsi verða flísar frá Parka. 1.2. Veggir Útveggir íbúðarinnar eru sandsparslaðir. Léttir innveggir eru hlaðnir úr vikur- eða gjallplötum, grófpússaðir og sandsparslaðir eða hefðbundnir gipsplötuveggir sparslaðir. Veggir eru grunnaðir og málaðir með tveimur yfirferðum af akrýlmálningu, gljástig 5 eða sambærilegt.

1.3. Loft Steypt loft eru slípuð, og slétt sandspörtluð. Loft eru grunnuð og máluð með tveimur yfirferðum af plastmálningu, gljástig 2 eða sambærilegt. Loft og veggir á baðherbergjum og þvottahúsum eru máluð með viðurkenndri votrýmismálningu. Á völdum stöðum og í ákveðnum íbúðum á 4.hæð er hluti lofta hljóðloft.

1.4. Gler Tvöfalt hefðbundið K-gler, verksmiðjugler er í öllum gluggum. Ábyrgð framleiðanda er samkvæmt skilmálum glerframleiðanda, Kambar ehf.

1.5. Hurðir Inngangshurð EICS-30, EICS-35 eða EICS-42 eftir því sem við á. Inngangshurð inn í íbúðina verður spónlögð. Innihurðar eru yfirfelldar, sléttar og sprautulakkaðar hvítar. Inngangshurðir inn í íbúðir og innihurðir eru frá Parka.

1.6. Fataskápar Fataskápur er í forstofu og svefnherbergjum. Í sumum hjónaherbergjum eru fataherbergi ýmist með rennihurðum og/eða hefðbundnum skápahurðum. Innréttingar verða frá Brúnás og eru að innan úr ljósgráum spónaplötum, en sýnilegar hliðar og hurðir verða spónlagðar eða sprautulakkaðar þar sem við á.

1.7. Eldhús Eldhúsinnrétting verður frá Brúnás og að innan úr ljósgráum spónaplötum, en sýnilegar hliðar og hurðir verða spónlagðar eða sprautulakkaðar. Borðplötur verða úr Virgo Quartz steini frá S. Helgasyni. Vaskur og blöndunartæki verða í innréttingu frá Tengi. Vaskur verður undirlímdur í borðplötu. Einnig mun fylgja helluborð með viftu, ofn með blæstri, örbylgjuofn, innbyggð uppþvottavél með áklæddum fronti. Ísskápar fylgja þar sem þeir eru innbyggðir í innréttingu. Raftæki sem fylgja koma frá Bræðrunum Ormsson.

1.8. Baðherbergi Á baðherbergi er gólf flísalagt og verða veggir flísalagðir upp í loft. Innrétting frá Brúnás verður að innan úr ljósgráum spónaplötum, en sýnilegar hliðar og hurðir verða sprautulakkaðar. Borðplötur eru úr Virgo Quartz steini. Á baðherbergi verða ýmist speglaskápar eða speglar eftir því sem við á. Handlaug ásamt hitastýrðu blöndunartæki verður í innréttingu eftir því sem við á frá Tengi. Handklæðaofn þar sem við á, upphengt og innbyggt salerni með hæglokandi setu ásamt flísalögðum sturtubotni með sturtuhlið úr gleri. Innbyggt blöndunartæki verður í sturtu frá Tengi.

1.9. Þvottahús Í þvottahúsi er gólf flísalagt og innréttingar frá Brúnás úr ljósgráum spónaplötum með ræstivask og blöndunartæki í borði. Ekki eru ræstivaskar í innréttingu í sameiginlegu þvottahúsi/baði. Borðplata er úr plasti. Niðurfall er í gólfi og tengingar fyrir þvottavél og þurrkara, gert er ráð fyrir barkalausum þurrkara. Veggir eru grunnaðir og málaðir með viðurkenndri votrýmis málningu.

1.10. Sérgeymsla Steypt loft, veggir og gólf í sérgeymslum eru hreinsuð og máluð. Skilveggir á milli geymslna eru ýmist steyptir eða með timburgrind og málaðri plötuklæðningu án innréttinga. Sérgeymslur inn af bílakjallara eru án innréttinga með stálhurð eða bílskúrshurð þar sem við á og lögð epoxy efni. Rafmagnstengill er í sérgeymslu.

1.11. Hitakerfi Íbúðirnar eru upphitaðar með gólfhita en sameign með ofnakerfi skv. teikningum. Gólfhita- sem og ofnakerfi í sameign fylgir frágengið og verða hitastýrðir lokar á því.

1.12. Loftræsi-, vatns- og þrifalagnir Loftræsi-, vatns, - og þrifalagnir fylgja frágengnar skv. teikningum. Forhitari er á heitu neysluvatni.

1.13. Rafmagns- og sjónvarpslagnir Rafmagns- og sjónvarpslögn fylgir frágengin með einum mynddyrasíma í íbúð. Loftnetstengill verður í alrými ásamt tölvutengli. Tölvutenglar verða í herbergjum. Ljósleiðari verður í húsinu. Innfelld lýsing í alrými (stofu og eldhúsi) samkvæmt teikningu…