Vallakór 2D

203 Kópavogur

Ásett verð: 89.900.000 kr.

Vallakór 2D
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
132,8 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2014
Fermetraverð
676.958 kr.

Lýsing

LIND fasteignasala kynnir rúmgóða þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð með stæði í bílageymslu, sérafnotareit og 25,7 fm yfirbyggðum svölum að hluta við Vallakór 2D í Kópavogi. Frábær staðsetning. Eignin er skráð 132,8 fm skv. FMR, þar af er 12,5 fm geymsla.

Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, samliggjandi stofu og borðstofu, baðherbergi, tvö svefnherbergi, sérafnotareit og 25,7 fm svalir.

FASTEIGNAMAT 2026 ER KR. 93.600.000

Allar nánari upplýsingar veitir

Arinbjörn Marinósson, löggiltur fasteignasali í síma 822-8574 eða arinbjorn@fastlind.is.

Nánari lýsing:

Forstofa : Með flísum á gólfi og góðum skápum.

Eldhús : Falleg hvít innrétting með stein á borðum.

Þvottahús : Innaf baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Gluggi er í þvottahúsi.

Stofa og borðstofa : Mjög rúmgóð og björt með parketi á gólfi, útgengi á 25,7 fm yfirbyggðar svalir

Baðherbergi : Rúmgott flísalagt í hólf og gólf með baðkari og sturtuklefa.

Hjónaherbergi : Rúmgott með parketi á gólfi og góðum fataskápum, útgengi á svalir

Svefnherbergi : Með parket á gólfi og fataskáp

Geymsla : 12,5 fm

Bílastæði í bílakjallara.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.