Geitland 3

108 Reykjavík

Ásett verð: 187.900.000 kr.

Geitland 3
Tegund
Raðhús
Stærð
239,60000038147 m²
Herbergi
8
Svefnherbergi
6
Baðherbergi
2
Byggingarár
1968
Fermetraverð
784.224 kr.

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Rúmgott og vel skipulagt fjölskylduraðhús á pöllum við Geitland 3 í Fossvogi. Samkvæmt skráningu HMS er eignin 239,6 fm, þar af íbúðarrými 212,0 fm og bílskúr 27,6 fm.

Í húsinu eru bjart og opið alrými með nýlegu eldhúsi frá HTH, sex svefnherbergi, sjónvarpsherbergi og rúmgott þvottahús. Timburverönd með heitum potti er til suðurs og hleðslustöð fyrir rafbíl er við bílskúr. Húsið stendur neðan götu í grónu og rólegu hverfi og bílastæði eru framan við hús. Stutt er í leikskóla, Fossvogsskóla, Réttarholtsskóla, íþróttasvæði Víkings og gönguleiðir í Fossvogsdal.

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.

Nánari lýsing:

Miðpallur

Komið er inn í flísalagða forstofu. Á pallinum er flísalögð gestasnyrting, forstofuherbergi með harðparketi og rúmgott herbergi með harðparketi, sem sýnt er sem eldhús á samþykktum teikningum. Inn af því er geymsla með innréttingu og bakútgangi.

Efsti pallur

Stofa, borðstofa og eldhús mynda bjart og opið alrými með harðparketi á gólfi og stórum gluggum til suðurs. Eldhúsið er frá 2025 með HTH-innréttingu og AEG-tækjum, m.a. 80 cm spanhelluborði með innbyggðri viftu. Úr stofu er gengið út á suðursvalir með góðu útsýni.

Neðri pallur

Á neðri palli eru hol, fjögur svefnherbergi og baðherbergi. Hjónaherbergið er með harðparketi og þaðan er útgengt á timburverönd til suðurs með heitum potti og litlum garðskúr. Barnaherbergin þrjú eru minni, einnig með harðparketi. Baðherbergið er með baðkari og sturtuaðstöðu og dúk á gólfi.

Neðsti pallur

Á neðsta palli, þar sem lofthæð er minni, eru sjónvarpsherbergi, geymsla með skápum og rúmgott þvottahús.

Bílskúr

Bílskúrinn er í bílskúrslengju, með hita, vatni og rafmagni og bílskúrshurð með rafmagnsopnun. Hleðslustöð fyrir rafbíl er við bílskúr.

Helstu endurbætur

2009: Þakjárn endurnýjað að sögn fyrri eigenda

2022: Skipt um þakflasningu á suðurhlið

2022: Ýmsar endurbætur, t.a.m. var sjónvarpsherbergi útbúið á neðsta palli, gólfefni lagt á flest rými, rafmagn endurnýjað að hluta og herbergi á efsta palli opnað inn í stofu.

2023: Timburverönd með heitum potti sett upp.

2023: Innrétting og ræstivaskur sett í þvottahúsi

2024: Umfangsmiklar endurbætur á bílskúrslengjunni

2025: Eldhús fært af miðpalli á efsta pall og herbergi útbúið á miðpalli þar sem áður var eldhús

2025: Nýjar innréttingar settar í geymslu á miðpalli og geymslu á neðsta palli

2026: Forstofa flísalögð

Framkvæmdir

Eigendur í raðhúsalengjunni hafa sammælst um að mála þak, endurnýja þakflasningu á vesturhlið og gera við sprungu á vesturgafli sumarið 2027.

Nánari lýsing eignarinnar:

Nánari upplýsingar veitir Kjartan Hallgeirsson Löggiltur fasteignasali, í síma 824-9093, tölvupóstur kjartan@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090 ***

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook