Hjallavegur 11

400 Ísafjörður

Ásett verð: 127.500.000 kr.

Hjallavegur 11
Tegund
Einbýlishús
Stærð
310,5 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Byggingarár
1953
Fermetraverð
410.628 kr.

Lýsing

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - [link] - kynnir til sölu - Hjallavegur 11 Ísafirði - Stórt og glæsilegt 310 m² einbýlishús á tveimur hæðum með 105,5 m² stórum bílskúr!

Stór 1500 m² lóð, einstaklega gott útsýni yfir fjörðinn og út á djúp.

Húsið var upphaflega byggt í kringum1953 og gegndi hlutverki sem áhaldahús og síðar björgunarsveitarhús. Á árunum 2006-2007 var húsið svo endurnýjað og stækkað, þá byggð 100 m² efri hæð ofan á húsið.

Húsið var einangrað og klætt með bárujárni í kringum 2008 og settar voru upp svalir á efri hæð. Húsið er vel einangrað og kyndikostnaður ekki mikill miðað við stærð.

Á jarðhæð er forstofa, gangur og fatageymsla, geymsla og þvottahús, tvö svefnherbergi og baðherbergi ásamt bílskúrnum.

Á efri hæð er stórt opið rými þar sem eru stofa og borðstofa og eldhús, einnig baðherbergi og stórt svefnherbergi með fataherbergi.

Nánari lýsing:

Jarðhæð:

Komið inn í flísalagða forstofu, fataherbergi með hillum og fatahengi, flísar á gólfi. Hiti í er í gólfi á jarðhæð nema í minna svefnherbergi.

Rúmgott þvottahús með innréttingu og útgengi út í bakgarð, flísar á gólfi. Geymsla með hillum. Innangengt úr gangi inn í bílskúr.

Gangur/hol með parketi á gólfi. Tvö svefnherbergi á hæðinni.

Minna herbergi með parketi á gólfi og ofnakerfi fyrir upphitum.

Stærra herbergið einnig með parketi á gólfi, mjög rúmgott herbergi sem var áður skipt niður í tvö herbergi og því mögulegt að bæta við svefnherbergi þar.

Baðherbergi uppgert 2017, góð aðgengileg sturta og innrétting, flísar á gólfi og veggjum.

Efri hæð:

L - laga tréstigi á milli hæða. Við stigagang er svalahurð, stórar og skjólgóðar 65m² svalir með góðu útsýni .

Stórt opið rými þar sem er sjónvarpsstofa, setustofa, borðstofa og eldhús . Góð lofthæð á efri hæðinni.

Eldhús með stórri innréttingu frá Tak-innréttingum, eyja með gashellu/ragmagnshelluborði og háfi, ofn og örbylgjuofn, uppbþottavél, mjög gott skápapláss.

Stór borðstofa, setustofa og sjónvarpsstofa, gott útsýni yfir fjörðinn. Parket á gólfi.

Rúmgott svefnherbergi með parketi á gólfi, stórt fataherbergi/geymsla inn af herberginu.

Baðherbergi með hornbaðkari með nuddi, innrétting, handklæðaofn, flísar á gólfi og veggjum.

Bílskúr er skráður 105,5 m² að stærð, þar stór bílskúrshurð með rafmagnsopnun á norðurgafli hússins, einni er inngönguhurð á austurhlið. Steypt málað gólf, gott geymslupláss, gert er ráð fyrir salerni í horni bílskúrs en það á eftir að fullkára.

Bílskúrinn er tilvalinn til dæmis fyrir iðnaðarmenn eða handverksfólk sem vill hafa vinnuaðstöðu heima við.

Stórt malarborið bílaplan norðan megin við bílskúr.