Fróðaþing 13

203 Kópavogur

Ásett verð: 220.000.000 kr.

Fróðaþing 13
Tegund
Einbýlishús
Stærð
229,099998474121 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
2008
Fermetraverð
960.279 kr.

Lýsing

**** Bókið skoðun hér **** heyrðu í mér 69 5-3502 eða sendu mér skilaboð á netf: sms@remax.is

RE/MAX og Sigrún Matthea kynna: Stórglæsilegt, mjög vandað og vel viðhaldið 229,1 m2 einbýlishús þar af 56,1 fm bílskúr Fróðaþing 13, hús á grónum og skjólsælum stað í Þingunum í Kópavogi. Stutt að sækja ma., í leik og grunnskóla, verslanir og íþróttamiðstöð og sundlaug, góðar gönguleiðir og aðra útvist.

Húsið er byggt úr steyptum einingum frá Loftorku, hátt til lofts, panell og innfelld halógen lýsing í öllum loftum, vandaðar sérsmíðaðar innréttingar, innihurðir yfir venjulegri hæð og gólfhiti er í öllu húsinu. Stór og rúmgóður bílskúr, hiti í bílaplani. Gróinn og skjólsæll garður, ásamt opnu óbyggðu svæði á bakvið hús sem gerir garðinn og veröndina prívat.

Eign á góðum stað í Þingunum Kópavogi.

Viltu fá sent söluyfirlit, smelltu hér

Nánari lýsing

Forstofa: Fataskápar, flísar á gólfi.

Svefnherbergi I: Fataskápur, viðarparket á gólfi.

Svefnherbergi II: Fataskápur, viðarparket á gólfi.

Þvottaherbergi: Góð innrétting, flísar á gólfi, útgengt út á timburverönd og lóð.

Gestasalerni: Innrétting, walk in sturta, vegghengt salerni, flísar á gólfi.

Eldhús / borðstofa / stofa: Bjart og rúmgott alrými, mjög hátt til lofts, sérsmíðuð eldhúsinnrétting, mjög gott vinnu og skápapláss, innbyggð uppþvottavél, eldhúseyja með gashelluborði, háfur yfir eyju, á gólfi eldhúshluta alrýmis eru flísar. Borðstofa / eldhús viðparket á gólfi, gengið út á timburverönd og garð.

Svefnherbergisálma.

Hol: Gott rými nýtt sem sjónvarpshol, viðarparket á gólfi, þaðan er stigi upp í óskráð rými ca 16m2 að stærð, hægt að nýta á ýmsan máta.

Svefnherbergi III: Góðir fataskápar, viðarparket á gólfi.

Svefnherbergi IV: Fataskápur, viðarparket á gólfi.

Baðherbergi: Sérsmíðuð innrétting, walk in sturta, vegghengt salerni, flísar á gólfi, útgengt út á timburverönd og í heitan pott.

Geymsla: Gangur úr húsi í bílskúr, yfir hluta af lofti er geymslurými.

Bílskúr: Rúmgóður bílskúr 56m2, sérsmíðuð innrétting - skápar, tvær bílskúrshurðir, hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl, flísar á gólfi, gengið út á lóð úr bílskúr.

Bílaplan: Hellulagt bílaplan hiti í plani.

Verönd: Timburverönd er bakvið hús, heitur pottur á verönd, timburverönd liggur meðfram húsinu.

Garður / lóð: Gróinn garður, og svo er autt svæði bakvið hús, sem gerir garðinn einstaklega skjólsælan og prívat.

Geymslu / vinnuskúr: Timburskúr fyrir garðverkfæri ofl.

Þetta er afar vandað og vel hannað hús, húsið er einganrað og endingargott úr steyptum einingum frá Loftorku, allar innréttingar sérsmíðaðar, innihurðir yfir venjulegri hæð, panell í loftum með innfelldri halogen lýsingu í öllum rýmum, gólfefni eru viðarparket og flísar, gólfhiti er í öllum gólfum. Tvöfaldur bílskúr og stórt hellulagt bílaplan.

Þetta er eign sem vert er að skoða.

Upplýsingar um eigina veitir Sigrún Matthea lgf. í síma 695-3502 eða á netfang sms@remax.is

Ert þú í söluhugleiðingum / fasteignahugleiðingum ? og ekki búinn að fá verðmat á eignina þína verðmat er án kostnaðar og skuldbindingar fyrir þig, velkomið að vera í sambandi við mig netf. sms@remax.is eða sími 695-3502

Viltu verðmat á þína eign ?

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800,- af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m/vsk.