Sólbakki 1
760 Breiðdalsvík
Ásett verð: 37.500.000 kr.

- Tegund
- Einbýlishús
- Stærð
- 134,7 m²
- Herbergi
- 6
- Svefnherbergi
- 5
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 1976
- Fermetraverð
- 278.396 kr.
Lýsing
Vel skipulagt og nokkuð mikið endurnýjað hús að innan með fimm svefnherbergjum og stórri lóð.
Stofa og eldhús eru samliggjandi í fremur opnu rými með útgengt á steypta verönd í garði. Rúmgóð og fín innrétting er í eldhúsi. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Þar er góð innrétting, stór sturta og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Hiti er í baðherbergisgólfi. Fimm svefnherbergi eru í húsinu eins og það er í dag þar sem þvottahúsi var breytt í herbergi og þvottavél og þurrkara komið fyrir í rúmgóðu baðherbergi. Forstofa er flísalögð sem og gestasalerni þar inn af. Hiti er í gólfi í forstofu.
Háaloft er yfir öllu húsinu.
Húsið stendur á 1301,6 m² lóð.