Grýtubakki 30

109 Reykjavík

Ásett verð: 53.900.000 kr.

Grýtubakki 30
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
72,2 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
1968
Fermetraverð
746.537 kr.

Lýsing

Miklaborg kynnir bjarta og rúmgóða 2ja herbergja íbúð á jarðhæð við Grýtubakka 30 í Breiðholti. Íbúðin er 72,2 fm og skiptist í forstofu, gang, svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og stofu. Úr íbúðinni er gengið út á stóran, 20 fm suðurpall — tilvalinn staður til að njóta sólarinnar. Sérgeymsla fylgir í kjallara. Frábær fyrstu kaup!

Íbúðin er á eftirsóttum stað í Bakkahverfinu í Neðra-Breiðholti, þar sem verslun og þjónusta, skólar, leikskólar og afþreying eru í göngufæri. Náttúruperlur Elliðaárdals, Árbæjarsafn og fallegar gönguleiðir eru einnig skammt undan.

Nánari upplýsingar veitir Íris Arna, löggiltur fasteignasali í síma 7700500 eða iris@miklaborg.is

Nánari lýsing

Forstofa: Komið er inn í forstofu með fataskáp. Harðparket er á gólfi.

Svefnherbergi: Rúmgott svefnherbergi með góðu skápaplássi og harðparketi á gólfi.

Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf og þar er hvít innrétting og sturtuklefi. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.

Eldhús: Opið og rúmgott eldhús með nýlega endurnýjaðri innréttingu og góðu skápaplássi. Ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð, og nýlegt harðparket er á gólfi.

Stofa: Björt og notaleg stofa með harðparketi á gólfi.

Pallur: Úr eldhúsinu er gengið út á rúmgóðan, 20 fm sólpall — frábæran stað til að njóta útiverunnar.

Sérgeymsla: Íbúðinni fylgir 7 fm sérgeymsla í kjallara.

Bílastæði: Næg sameiginleg bílastæði eru framan við húsið. Þar eru einnig fjórar hleðslustöðvar fyrir íbúa.

Nánari upplýsingar veitir Íris Arna, löggiltur fasteignasali í síma 7700500 eða iris@miklaborg.is