Vestursíða 5A

603 Akureyri

Ásett verð: 91.900.000 kr.

Vestursíða 5A
Tegund
Raðhús
Stærð
150 m²
Herbergi
6
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Byggingarár
1984
Fermetraverð
612.667 kr.

Lýsing

Kasa fasteignir 461-2010.

**Eignin verður sýnd miðvikudaginn 7. október kl 16:15-16:45 - Vinsamlegast skráið ykkur á sölusýningu á kasa@kasafasteignir.is.**

**Athugið ef engin skráning hefur borist fyrir kl 12:00 á sýningardag fellur sölusýningin niður.**

Vestursíða 5A - Vel skipulögð og vel við haldin 5 herbergja 150 fm íbúð í suður enda í raðhúsi í Síðuhverfi. Við eignina eru tveir geymsluskúrar og nokkuð stór timbur verönd.

Eignin skiptist með eftirtöldum hætti,

Neðri hæð 98,4 fm: Forstofa, þvottahús, eldhús, hol, stofa, svefnherbergi og baðherbergi.

Efri hæð 51,6 fm: Þrjú svefnherbergi, gangur, baðherbergi og hol.

Forstofa : Þar eru flísar á gólfi, inn af forstofu eru skápar.

Hol/Borðstofa: Er með parketi á gólfi.

Eldhús : Vönduð ljós grá innrétting með góðu skápa- og bekkjarplássi. Granít bekkplata er kringum helluborð. Ljósar flísar eru á milli skápa og parket á gólfi.

Stofa : Í stofu er loft tekið upp, gluggar til austurs og hurð út á stóra verönd, steypt og timbur og með timbur skjólveggjum.

Baðherbergi : Er nýlega uppgert. Flísalagt í hólf og gólf. Vegghengd skúffu innrétting og speglaskápur. Salerni og innangeng sturta með sturtugleri.

Svefnherbergi : Er nokkuð rúmgott með góðum fataskáp og parketi á gólfi.

Þvottahús : Var stækkað og sameinað geymslu. Þar er mikið skápa og skúffupláss. Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Flísar á gólfum.

Stigi á milli hæða er með timbur þrepum.

Hol : Hol á efrihæð er með parketi á gólfum og þakglugga. Opið er niður í stofu.

Svefnherbergi : Eru þrjú á hæðinni, öll með parketi á gólfum og fataskápum.

Baðherbergi : Er með nýlegri innréttingu. Salernig og baðkar. Opnanlegur gluggi er á baðherberginu.

- Nýlegur geymsluskúr er á lóð á móti íbúðinni.

- Eldri skúr er sunnanmeginn við húsið.

- Húsið málað fyrir um 2 árum.

- Stór timbur verönd með skjólveggjum.

- Stutt í leik- og grunnskóla.

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is

------------

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Teikningar sem birtar eru í auglýsingu og söluyfirliti eru eingöngu til viðmiðunar og sýna núverandi skipulag eignarinnar. Ekki er ábyrgst að þær séu samþykktar teikningar eða í samræmi við opinber byggingargögn.