Borgarheiði 17V

810 Hveragerði

Ásett verð: 59.400.000 kr.

Borgarheiði 17V
Tegund
Parhús
Stærð
113 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
0
Byggingarár
1975
Fermetraverð
525.664 kr.

Lýsing

KOMIÐ ER SAMÞYKKT KAUPTILBOÐ MEÐ FYRIRVARA UM FJÁRMÖGNUN!

BORGARHEIÐI 17V, 810 HVERAGERÐI

STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR

VERÐLÆKKAÐ – NÝTT VERÐ 59,4 M.KR.

MJÖG GOTT FERMETRAVERÐ – GÓÐ KAUP!

Snyrtilegt og vel skipulagt 5–6 herbergja parhús á einni hæð með bílskúr og stórum, sólríkum garði, við Borgarheiði 17V í Hveragerði. Eignin er samtals um 113 m², þar af um 89 m² í búðarhluti og 24 m² bílskúr.

Húsið stendur í rólegum botnlanga í rótgrónu fjölskylduhverfi, rétt við leikskóla og stutt frá skóla og helstu þjónustu. Eignin býður upp á sveigjanlegt skipulag, góða aðstöðu fyrir fjölskyldu og skemmtilega möguleika á breyttri herbergjaskipan.

NÁNARI UPPLÝSINGAR OG BÓKUN SKOÐUNAR

Benedikt Ólafsson – löggiltur fasteigna- og leigumiðlari

Sími : 661 7788 | Netfang: bo@stofnfasteignasala.is

Smelltu hér til að skoða myndband um eignina

*Smelltu hér til að sækja söluyfirlit*

HELSTU KOSTIR EIGNARINNAR Parhús á einni hæð með um 24 m² bílskúr.

Stór og sólríkur garður til suðurs og austurs.

Sveigjanlegt skipulag með möguleika á fjölgun svefnherbergja.

Þak og hlutar útveggja endurnýjuð árið 2024.

Rólegur botnlangi, rétt við leikskóla og stutt í skóla og þjónustu.

EIGNIN SKIPTIST Í

Forstofu, hol, svefnherbergi, hjónaherbergi, baðherbergi, þvottahús, stofu og borðstofu, eldhús, sólskála og herbergi inn af honum, auk bílskúrs og garðs.

FORSTOFA OG HOL

Forstofa með glugga og fataskáp. Hol tengir saman helstu rými eignarinnar.

SVEFNHERBERGI

Rúmgott herbergi með fataskáp.

STOFA OG BORÐSTOFA

Björt og rúmgóð stofa með góðu plássi fyrir setustofu og borðstofu. Rýmið tengist sólskálanum og býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika.

Samkvæmt upphaflegri teikningu var eldhúsið staðsett í núverandi stofurými, sem gefur möguleika á að endurskoða skipulagið og nýta núverandi eldhús sem viðbótarsvefnherbergi, að teknu tilliti til nauðsynlegra leyfa og samþykkta.

ELDHÚS

Eldhús með viðarinnréttingu, góðu skápaplássi og borðkrók við glugga. Bakarofn er í vinnuhæð og spanhelluborð er í innréttingunni.

SÓLSKÁLI OG HERBERGI

Bjartur sólskáli sem nýtist sem framlenging á stofunni og býður upp á fallega tengingu við garðinn.

Inn af sólskálanum er herbergi sem hefur verið nýtt sem svefnherbergi og getur einnig hentað til annarra nota eftir þörfum.

HJÓNAHERBERGI

Hjónaherbergi með góðu skápaplássi.

BAÐHERBERGI

Baðherbergi með glugga, sturtuklefa, salerni og innréttingu með handlaug og skúffum. Flísar eru á gólfi og að hluta á veggjum.

ÞVOTTAHÚS

Sérstakt þvottahús með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara og stórum skápum. Yfir hluta hússins er kalt skriðloft sem hefur verið nýtt til geymslu.

GÓLFEFNI

Flísar eru á gólfum í forstofu, holi, baðherbergi, stofu og borðstofu, eldhúsi og hjónaherbergi. Parket er í svefnherberginu við holið og málað gólf í þvottahúsi.

GARÐUR

Stór og sólríkur garður til suðurs og austurs. Garðurinn býður upp á góða útivistaraðstöðu og möguleika til að njóta sólar og útiveru.

Á lóðinni er einnig hellulögð aðstaða sem hefur verið nýtt fyrir hjólhýsi eða húsbíl.

BÍLSKÚR

Um 24 m² upphitaður bílskúr með vinnuaðstöðu, skolvaski og rafdrifnum hurðaopnara með fjarstýringu.

NÝLEGAR ENDURBÆTUR – 2024

Að sögn eiganda: Maí 2024 var ráðist í endurbætur á þaki og hluta útveggja að framanverðu hússins.

Þakjárn, þakpappi og flasningar voru endurnýjuð ásamt timbri þar sem þess þurfti.

Útveggur við forstofu og gluggi til vesturs voru endurnýjuð, sem og útveggur og gluggi á baðherbergi.

Einnig var endurnýjað kringum hitaklefa, lagnagrind og inntak inn í húsið, sett ný klæðning á endurnýjaða veggi og nýjar flasningar við þakskegg.

ATH. – SKIPULAG OG MÖGULEIKAR

Samkvæmt upphaflegri teikningu var eldhús staðsett í núverandi stofurými en svefnherbergi þar sem eldhúsið er í dag.

Skipulag eignarinnar býður því upp á áhugaverða möguleika á breytingum og fjölgun svefnherbergja, með fyrirvara um viðeigandi heimildir og samþykktir þar sem þeirra er þörf.

STAÐSETNING

Borgarheiði 17V er staðsett í rólegum botnlanga í rótgrónu fjölskylduhverfi í Hveragerði.

Leikskóli er rétt við eignina og stutt er í skóla, verslanir og helstu þjónustu.

Hér er um að ræða eign fyrir þá sem sækjast eftir húsnæði á einni hæð, góðum garði, bílskúr og sveigjanlegu skipulagi í fjölskylduvænu umhverfi.

ENGLISH

Single-level, 5–6 room semi-detached home in a quiet cul-de-sac in Hveragerði. Approximately 113 m², including a 24 m² garage. Sunny garden, flexible floor plan and roof and exterior improvements carried out in 2024.

POLSKI

Parterowy, 5–6-pokojowy dom w zabudowie bliźniaczej przy spokojnej, ślepej uliczce w Hveragerði. Około 113 m², w tym garaż 24 m². Słoneczny ogród, elastyczny układ pomieszczeń oraz remont dachu i części ścian zewnętrznych przeprowadzony w 2024 roku.

NÁNARI UPPLÝSINGAR OG BÓKUN SKOÐUNAR

Benedikt Ólafsson – löggiltur fasteigna- og leigumiðlari

Sími : 661 7788 | Netfang: bo@stofnfasteignasala.is

ERT ÞÚ AÐ HUGSA UM AÐ SELJA?

Okkur hjá STOFN vantar eignir af öllum stærðum og gerðum á skrá. Hafðu samband og fáðu faglega, persónulega ráðgjöf.

STOFN Fasteignasala – Setjum þig í fyrsta sætið

Heilindi – Dugnaður – Árangur