Brattakinn 33

220 Hafnarfjörður

Brattakinn 33
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
60,6 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1910

Lýsing

Þriggja herbergja íbúð á 1. hæð með sérinngangi í þríbýlishúsi við Bröttukinn 33, Hafnarfirði

* Íbúðin þarfnast endurbóta

* Nýleg eldhúsinnrétting fylgir með eigninni, er óuppsett í herbergi á mynd

* Tækifæri fyrir handlaginn

Nánari upplýsingar veita:

Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða helen@palssonfasteignasala.is

[link]

[link]

Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð eignar samkv. HMS er 60,60 m2 og fyrirhugað fasteignamat 2027 er 51.400.000 kr.

Eignin skiptist í hol, stofu, 2 svefnherbergi, eldhús, baðherbergi og geymslu.

Hol er með parket á gólfi.

Stofa er með parket á gólfi.

Svefnherbergin eru tvö, bæði með parket á gólfi.

Eldhús er með eldri L-laga innréttingu og flísum á gólfi. Nýleg óuppsett innrétting fylgir með eigninni.

Baðherbergi er með salerni, handlaug með speglaskáp og baðkari. Flísar á gólfi.

Lítil geymsla er innan íbúðar.

Sameiginlegt þvottahús er á jarðhæð.

Eign með mikla möguleika á vinsælli og fjölskylduvænni staðsetningu í Hafnarfirði. Þaðan er stutt að sækja leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og aðra þjónustu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.