Sætún - Hlutdeildarlán 12
430 Suðureyri
Ásett verð: 24.180.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 66,9 m²
- Herbergi
- 3
- Svefnherbergi
- 2
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 1977
- Fermetraverð
- 361.435 kr.
Lýsing
Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - [link] kynnir til sölu - Sætún 10 Suðureyri - íbúð 0201 fnr. 2126832 - Endurnýjuð 66,9 fm, 3ja herbergja íbúð með sérinngangi á efri hæð.
ATH EIGNIN HEFUR HLOTIÐ SAMÞYKKI FYRIR HLUTDEILDARLÁNI.
Nánari lýsing:
Gengið inn um sér inngang inn í alrými. Eldhúskrókur með fallergi nýrri innréttingu frá IKEA, innbyggðri uppþvottavél og vönduðum tækjum. Stofan er björt og með stórum gluggum til suðvesturs með útgengt á svalir. Svefnherbergin eru tvö og eru góð. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, góð sturta, upphengt salerni og góð innrétting.
Rafrænt útsog er á baðhberginu.
Fallegt harðparket er á öllum gólfum að undanskyldu baði þar sem eru flísar.
Í kjallara er sameignlegt þvottahús, geymsla og hjóla- og vagnageymslur.
Húsið hefur verið mikið endurnýjað sl. ár. Búið að klæða húsið að utan, endurnýja allar neysluvatnslagnir og ofnalagnir ásamt rafmagnslögnum.
Allar innréttingar og tæki eru nýleg og ónotuð.
Eignin fellur undir hlutdeildarlán og því auðveld kaup fyrir fyrstu kaupendur eða þá sem hafa ekki átt eign í 5 ár eða lengur.
Kaupverð: 24.180.000,- kr.
Eigið fé í peningum (5%) 1.209.000.- kr
Hlutdeildarlán allt að 20%
Fasteignalán banka/lífeyrissjóðs 75%
Sjá nánar um hlutdeildarlán á [link]
Skilyrði fyrir lántöku Hlutdeildarláns:
Að vera að kaupa íbúð í fyrsta skipti eða hafa ekki átt íbúð síðustu 5 ár.
Að hafa tekjur undir ákveðnum mörkum.
Að eiga 5% útborgun.
Að kaupa íbúð sem er samþykkt af HMS.
Standast greiðslubyrðarhlutfall Seðlabankans
Kaupandi þarf aðeins að eiga fyrir 5% útborgun.
Kaupandi fær hlutdeildarlán fyrir allt að 20% af kaupverði.
Kaupandi tekur íbúðarlán fyrir rest.