Skyggnisholt 12

190 Vogar

Ásett verð: 64.900.000 kr.

Skyggnisholt 12
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
106,6 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2023
Fermetraverð
608.818 kr.

Lýsing

Díana og Hulda löggiltir fasteignasalar hjá fasteignasölunni Lögheimili Eignamiðlun ehf. kynna glæsilega 4ra herbergja íbúð með sérinngangi og sérverönd/svölum við Skyggnisholt 12 í Vogum á Vatnsleysuströnd, merkt 02-04, fastanúmer 252-0526 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Húsið er klætt að utan, á tveimur hæðum og með sérinngang, alls 8 íbúðir eru í húsinu. íbúð er á 2.hæð með sérenda inngangi af svölum.

Eignin Skyggnisholt 12 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 252-0526, birt stærð 106.6 fm.

Forstofa: Flísalögð með skápum.

Eldhús og stofa: Í björtu alrými með útgengi á svalir.

Hjónaherbergi: Rúmgott með skápum, parket á gólfi.

Tvö rúmgóð svefnherbergi: Með skáp, parket á gólfi.

Baðherbergi: Walk-in sturta, innrétting með handlaug, upphent salerni, handklæðaofn og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Geymsla: Innan íbúðar.

Samkvæmt seljanda:

Innréttingar og skápar eru frá HTH Ormsson, bakarofn, keramik helluborð, eyjuháfur/veggháfur(kolasíu) frá Gorenje. Harðparketi er á gólfum fyrir utan votrými sem eru flísalögð. Gluggar eru ál-trégluggar frá Byko. Tvöfalt hefðbundið verksmiðjuframleitt K-gler.

Lóðin er fullfrágengin, gönguleiðir að stigahúsi eru hellulagðar og með hita, tröppur með hita. Bílastæði malbikuð og hleðslustöð fyrir bíla á bílastæði sem er í sameign. Dýrahald leyft.

Frábær staðsetning í Vogunum sem er ört stækkandi og vinsælt sveitafélag.

Komin er verslun á svæðið og veitingarstaður sem er í 5 mínútna göngufjarlægð auk þess sem gert er ráð fyrir verslunar-og þjónustukjarna í næstu götu.

Nánari upplýsingar veitir

Hulda Ósk Baldvinsdóttir löggiltur fasteignasali, í síma 771 2528, tölvupóstur hulda@logheimili.is.

Díana Arnfjörð löggiltur fasteignasali, í síma 895 9989, tölvupóstur diana@logheimili.is.