Jöklafold 12

112 Reykjavík

Ásett verð: 75.900.000 kr.

Jöklafold 12
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
114,6 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1988
Fermetraverð
662.304 kr.

Lýsing

**** Seld með fyrirvara****

Borg fasteignasala kynnir rúmgóða 4ra herbergja íbúð við Jöklafold 12. Eignin er 114,6 fm að stærð og er á neðri hæð í tvíbýlishúsi við botnlangagötu. Íbúðin er með sérinngangi og rúmgóðri verönd framan við innganginn. Á veröndinni er nýlegur geymsluskúr.

Nánari lýsing:

Forstofa: Harðparket á gólfi með fataskáp.

Eldhús: Með nýlegri innréttingu, bakaraofn með pláss fyrir ísskáp og uppþvottavél

Borðstofa: Rúmgóð og björt samtengd við eldhús.

Stofa: Rúmgóð.

Baðherbergi: Flísalagt, með baðkari, sturtu og nýlegri innréttingu. Gluggi er á baðherbergi.

Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart herbergi með fataherbergi.

Barnaherbergi: Harðparket á gólfi og fataskápur.

Geymslurými: auka geymslu rými á móti baðherbergi með innréttingu

Þvottahús: Inn af eldhúsi, með nýlegri innréttingu.

Rými inn af stofu og eldhúsi: Skráð sem geymsla, með útgengi í garð. Opnanlegt fag er í hurðinni. Hægt væri að nýta rýmið sem svefnherbergi

Gólfefni og endurbætur: Nýlegt parket er á öllum gólfum að undanskildum baðherbergi og þvottahúsi. Allar innihurðir eru nýlegar, sem og innréttingar í eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi. Íbúðin er nýmáluð.

Lóð og útisvæði: Lóðin framan við húsið er snyrtileg. Þar er rúmgóð verönd með nýlegum geymsluskúr.

Björt og rúmgóð íbúð sem hefur verið mikið endurnýjuð að hluta, á góðum stað í Grafarvogi.

Nánari upplýsingara veitir:

Victor Levi R. Ferrua, löggiltur fasteignasali á Borg fasteignasölu.

s. 868 2222 / victor@fastborg.is

Úlfar Þór Davíðsson löggiltur fasteignasali

s:788-9030 / 519-5500 ulfar@fastborg.is

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af fasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.

3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.