Mávanes 9

210 Garðabær

Mávanes 9
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
316,399999237061 m²
Herbergi
7
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
3
Byggingarár
1964

Lýsing

Jason Kristinn Ólafsson, löggiltur fasteignasali (s. 775-1515 / jason@betristofan.is), kynna: Mávanes 9, 210 Garðabæ – Frumbyggjar selja einstaklega vel staðsett einbýlishús með glæsilegum arkitektúr á fallegri sjávarlóð sunnan megin á Arnarnesinu.

Um er að ræða upprunalegt 316,4 m² einbýlishús sem teiknað var af Helga Hjálmarssyni arkitekt. Húsið stendur á 1.400 m² suðvesturlóð alveg við sjóinn sem tryggir ómótstæðilegt og óhindrað útsýni . Húsið var reist árið 1970 og hefur verið í eigu sömu aðila frá upphafi.

Skipting eignarinnar: Aðalhæð : 211,9 m²

Bílskúr : 62,8 m²

Bátaskýli / geymsla: 41,7 m²

Samtals : 316,4 m²

Lóðarstærð : 1.400 m²

Verð : Tilboð

NÁNARI LÝSING: Anddyri og alrými:

Forstofa : Komið er inn í flísalagða forstofu.

Gestasnyrting : Snyrtileg og flísalögð gestasnyrting staðsett við anddyrið.

Skrifstofa/Svefnherbergi: Rúmgott herbergi sem nýtist vel sem skrifstofa eða svefnherbergi. Fallegur gluggi í herberginu með sjávarútsýni.

Stofa : Björt og afar rúmgóð stofa með arni og glæsilegu útsýni yfir hafið. Úr stofu er vönduð rennihurð út á pall með útiarni og þaðan áfram út í garð.

Borðstofa : Opin og falleg borðstofa. Rýmið er einstaklega bjart með gluggum til norðurs og stórum gluggum sem snúa mót suðri með sjávarútsýni.

Eldhús : Sérsmíðuð eldhúsinnrétting og parket á gólfi.

Sjónvarpsstofa : Gengið er niður þrjár tröppur á neðri pall þar sem sjónvarpsstofan er staðsett. Frá efri palli er gengið út á skjólsælan pall til suðurs með útiarni.

Auka anddyri & þvottahús: Sér þvottahús er staðsett á milli eldhúss og auka anddyris.

Svefnherbergisgangur : Gangurinn er teppalagður og leiðir inn í svefnálmu hússins.

Baðherbergi : Staðsett í álmunni, með sturtu.

Svefnherbergi : Fjögur svefnherbergi eru í álmunni.

Hjónaherbergi : Sérlega rúmgott með fataherbergi og sérbaðherbergi innaf sem er útbúið baðkari.

Bílskúr og neðri hæð (bátaskýli/geymsla): Bílskúr : Skráður 62,8 m². Rúmgóður með tveimur innbyggðum geymslum. Hleðslupláss og gott athafnasvæði.

Bátaskýli/Geymsla: 41,7 m² rými á neðri hæð sem snýr til suðurs út í garðinn. Rýmið er með bæði hefðbundinni hurð og bílskúrshurð. Þetta rými býður upp á mikla möguleika og gæti nýst sem bátaskýli, vinnustofa, geymsla eða jafnvel auka svefnherbergi.

Lóð og ytra byrði: Lóðin: 1.400 m² stóreignarlóð sem snýr til suðvesturs alveg niður að sjó. Einstök staðsetning á Arnarnesinu.

Bílastæði: Gott hellulagt plan með stæði fyrir 3 bíla.

Þak: Upprunalegt þak sem hefur fengið reglulegt og gott viðhald ásamt eftirliti undanfarin ár.

Niðurlag:

Hér er um að ræða einstakt tækifæri til að eignast vel hannað arkitektaheimili á einum eftirsóttasta stað landsins. Staðsetningin við sjávarlóð á Arnarnesi gerist ekki mikið betri.

Nánari upplýsingar veita Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 / jason@betristofan.is / löggiltur fasteignasali