Naustavör 16

200 Kópavogur

Ásett verð: 158.000.000 kr.

Naustavör 16
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
150 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Byggingarár
2018
Fermetraverð
1.053.333 kr.

Lýsing

Betri Stofan og Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 jason@betristofan.is fasteignasala kynnir: 4ra til 5 herbergja íbúð í lyftuhúsi við Naustavör 16, sem er við sjávarsíðuna á Kársnesinu í Kópavogi. Íbúðin sjálf er 141,6 fermetrar að stærð auk sérgeymslu í kjallara, 8,4 fermetra. Samtals er því birt flatarmál eignarinnar 150 fermetrar auk sérmerkts bílastæðis í lokaðri og upphitaðri bílageymslu í kjallara hússins, merkt B-10. Tvennar svalir eru á íbúðinni. Tvö baðherbergi með sturtu. Frábær staðsetning.

Eignin skiptist í forstofu, stofur, eldhús, sjónvarpshol, svefnherbergi með fataherbergi og baðherbergi innaf, tvö önnur svefnherbergi, auka baðherbergi með sturtu, þvottaherbergi. Sérgeymsla og stæði í bílageymslu. Gólfhiti er í íbúðinni

Komið inní anddyri með fataskápum.

Rúmgott hol sem skiptist í stofur, eldhús og sjónvarpsherbegi.

Stofur: eru einstaklega rúmgóðar með gott flæði og skipulagið er gott.

Sjónvarsrými / herbergi með fallegu útsýni.

Svalir á smábátahöfnina og til austurs með morgunsólinni út frá stofu.

Eldhús: Kvartssteinn frá S.Helgasyni. Eldhúsinnrétting er frá Brúnás. Gott skápapláss, stór eyja.

Baðherbergi : Gengið er í það frá frá holi/stofu. Á baðherberginu er sturta, gólfið flísalagt og veggir flísalagðir upp í loft. Innrétting er frá Brúnás.

Hjónasvíta : Með fataherbergi og baðherbergi.

Skrifstofa/ svefnherbergi snúa til vesturs og úr öðru þeirra er útgengt út á svalir sem eru yfirbyggðar.

Þvottahús : Í þvottahúsi er gólf flísalagt og innréttingar frá Brúnás með ræstivask og blöndunartæki í borði.

Sérgeymsla: Er að stærðinni 8,4 fermetrar. Rafmagnstengill er í sérgeymslu.

Allar innréttingar eru sérsmíðaðar frá Brúnási, eldhústæki eru af vandaðri gerð frá Bræðrunum Ormsson og blöndunartæki eru af vandaðri gerð frá Tengi.

Traustur byggingaaðili Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf.

Lóð: frágengin samkvæmt teikningu landslagsarkitekts. Stéttar næst húsi eru hellulagðar og snjóbræðslulögn í gangstíg framan við húsið samkvæmt teikningu. Bílastæði eru malbikuð.

Frábærar gönguleiðir eru í næsta nágrenni við sjávarsíðuna. Stutt yfir í Sky Logoon og innan örfárra ára kemur brú yfir Fossvoginn sem styttir gönguleiðina til Reykjavíkur.

Nánari upplýsingar veitir Jason Kristinn Ólafsson Löggiltur fasteignasali, í síma 7751515, tölvupóstur jason@betristofan.is.