Fellsmúli 20

108 Reykjavík

Ásett verð: 66.900.000 kr.

Fellsmúli 20
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
105,4 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1967
Fermetraverð
634.725 kr.

Lýsing

Borg fasteignasala kynnir til sölu snyrtilega 4ja herbergja íbúð á efstu hæð við Fellsmúla. Íbúðin skiptist í forstofuhol, stofu, eldhús, tvö barnaherbergi, hjónaherbergi með fataherbergi inn af, baðherbergi og sérgeymsla í sameign ásamt sameiginlegu þvottahúsi.

Nánari lýsing:

Forstofuhol með parketi.

Stofa er björt með parketi og útgangi út á svalir.

Eldhús er með dúk á gólfi og dökkri innréttingu og borðkrók.

Barnaherbergi I með parketi.

Barnaherbergi II með parketi og fataskápum.

Hjónaherbergi með fataskápum og fataherbergi inn af.

Baðherbergi er flísalagt með innréttingu og baðkari.

Sérgeymsla er í sameign og sameiginlegt þvottahús.

Aðrar eignir í stigahúsinu hafa breytt fataherbergi inn af hjónaherbergi í þvottahús.

Möguleiki er að flest húsgögn og raftæki get fylgt eigninni.

Nýlegar endurbætur hafa átt sér stað á húsinu, gluggar lagfærðir að hluta og skipt um þakpappa. 2022/2024

Húsfélagsgjaldið er aðeins 7.500 á mánuði þar sem húsfélagið leigir út stúdíóíbúð í þeirra eigu á jarðhæð sem skilar leigutekjum í húsfélagið.

Nánari upplýsingar veitir Brandur Gunnarsson löggiltur fasteignasali-löggiltur leigumiðlari í síma 897-1401 brandur@fastborg.is hjá BORG fasteignasölu.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.

3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði