Dugguvogur 13

104 Reykjavík

Ásett verð: 87.900.000 kr.

Dugguvogur 13
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
122,4 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Byggingarár
2023
Fermetraverð
718.137 kr.

Lýsing

Baldur fasteignasali – Beinn sími 450-0000 kynnir: Í einkasölu fallega og vel skipulagða fjögurra herbergja íbúð (þrjú svefnherbergi) á 2. hæð í nýlegu lyftuhúsi við Dugguvog 13 í Vogabyggð, 104 Reykjavík. Í íbúðinni eru tvö baðherbergi , þar af annað inn af hjónaherbergi, og þvottahús er innan íbúðar . Frá stofu er gengið út á suðvestursvalir. Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði í bílakjallara og þaðan er innangengt í lyftu- og stigahús. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 122,40 fermetrar , þar af er sérgeymsla í kjallara 18,5 fermetrar. Bílastæðið er ekki innifalið í fermetratölu eignarinnar. Húsið er er einstaklega vandað, það er byggt 2023 af ÞG Verk. Húsið er steinsteypt, einangrað að utan og klætt álklæðningu, sem heldur viðhaldi í lágmarki

Eignin getur verið laus við kaupsamning.

Aðal sölupunktar:

- Tvö baðherbergi

- Þvottahús innan íbúðar

- Suðvestursvalir með möguleika á svalalokun

- Sérmerkt bílastæði í bílakjallara og innangengt í lyftuhús

- 18,5 fm sérgeymsla í kjallara

- Sameiginleg hjólageymsla

- Húsið er byggt 2023 af ÞG Verk. Það er steinsteypt, einangrað að utan og klætt álklæðningu, sem heldur viðhaldi í lágmarki

- Gluggar úr ál/tré með K-gleri

- Eignin getur verið laus mjög fljótlega

Um er að ræða vandaða eign í húsi sem ÞG Verk byggði. Vogabyggð er nýlegt og eftirsótt hverfi við sjávarsíðuna, stutt frá Elliðaárdal og Laugardal.

Íbúðin skiptist í anddyri/forstofu, eldhús og stofu í opnu alrými, hjónaherbergi með sérbaðherbergi, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Þá fylgir íbúðinni jafnframt sérgeymsla í kjallara, sérmerkt bílastæði í bílakjallara og hlutdeild í sameiginlegri hjólageymslu.

Nánari lýsing:

Anddyri / forstofa: Harðparket á gólfi og fataskápur.

Eldhús / alrými: Eldhús og stofa eru í opnu og björtu rými. Vönduð innrétting frá þýska framleiðandanum Nobilia með lýsingu undir efri skápum. AEG eldhústæki: spanhelluborð, blástursofn, vifta, innbyggður kæliskápur og innbyggð uppþvottavél.

Stofa: Rúmgóð stofa sem er opin við eldhús. Harðparket á gólfi og útgengt á suðvestursvalir. Möguleiki er á svalalokun.

Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með fataskápum frá GKS og harðparketi á gólfi. Baðherbergi er inn af hjónaherbergi.

Svefnherbergi I: Harðparket á gólfi og fataskápar.

Svefnherbergi I: Harðparket á gólfi og fataskápar.

Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja. Nobilia innrétting með speglaskáp. Sturta með flísalögðum botni og hertu sturtugleri, vegghengt salerni með innbyggðum vatnskassa og blöndunartæki frá Grohe.

Baðherbergi inn af hjónaherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja. Nobilia innrétting, sturta með hertu sturtugleri og vegghengt salerni.

Þvottahús: Sérrými innan íbúðar. Flísar á gólfi.

Geymsla: Sérstaklega rúmgóð 18,5 fermetra sérgeymsla í kjallara.

Staðsetning: Vogabyggð er skjólsælt og fjölskylduvænt hverfi við sjóinn. Hjóla- og göngustígar liggja meðfram ströndinni og upp í Elliðaárdal, og Laugardalurinn er innan seilingar. Stutt er í alla helstu þjónustu, leikskóla og skóla.

Nánari upplýsingar veitir:

Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali

baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000

Skoða meðmæli - Verðmat fasteigna - Lúxus fasteignir - Greiðslumat.is - Hvað getur þú keypt