Sunnubraut 11
230 Reykjanesbær
Ásett verð: 92.900.000 kr.

- Tegund
- Einbýlishús
- Stærð
- 190,899998474121 m²
- Herbergi
- 5
- Svefnherbergi
- 4
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 1952
- Fermetraverð
- 486.642 kr.
Lýsing
Ásberg fasteignasala kynnir í einkasölu einbýlishús á tveimur hæðum ásamt bílskúr við Sunnubraut 11, Keflavík, Reykjanesbæ.
190,9 fermetra, 4 herbergja einbýlishús í hjarta Keflavíkur við Sunnubraut 11, eignin er með tveim baðherbergjum, bílskúr og góðum garði og verönd. Í göngufæri við íþróttahús og sundlaug, verslun, skóla og þjónustu, grunn- og leikskóla.
Nánari lýsing;
Gengið er inn í anddyri með flísum á golfi og eikar fataskáp. Hol með eikar parketi á gólfi, eikar stigi upp á efri hæðina. Opið er á milli eldhús, borðstofu og stofu, stór og góð innrétting, gott skápa pláss, flísar og eikar parket á gólfum. Tvö svefnherbergi með eikar parketi á gólfi á hæðinni.
Baðherbergi allt ný tekið í gegn með flísum á gólfi og inn í sturtunni, klósett og innrétting, plötur á hluta af veggjum.
Þvottahús með flísum á gólfi og innréttingu, hurð út á baklóðina, stór og góð verönd.
Efri hæðin:
Gengið upp góðan stiga úr holi hússins. Það er eitt mjög rúmgótt svefnherbergi á hæðinni með fataskáp. Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, innrétting, baðkar og upphengt klósett. Það er stórt sjónvarps eða setustofa á efri hæðinni sem væri mjög auðvelt að gera fleiri herbergi úr. Það eru tveir þakgluggar á húsinu.
Bílskúr:
Bílskúr er með rafmagns opnara á hurð. Það er búið að skipta um þakjárn á húsinu. Skúrinn er með kalt og heitt vatn, miðstöðvarlögn og forhitari á miðstöðvarkerfi hússins. Gott geymslurými er í endanum á skúrnum. Það er stórt og gott hellulagt bílaplan við húsið ásamt timbur verönd.
Það er búið að endurnýja skolplagnir.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Ásberg fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Allar nánari upplýsingar um eignina eru veittar á skrifstofu Ásberg Hafnargötu 27, Reykjanesbæ eða í síma 421-1420
asberg@asberg.is, asberg.is
Jón Gunnarsson Lögg. fasteigna- og skipasali. S: 894-3837
Þórunn Einarsdóttir S: 898-3837
Vegna eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá.
Gjöld sem kaupandi þarf að huga að við kaup. Stimpilgjald vegna þinglýsingar kaupsamnings er 0,4-1,6% af fasteignamati hins keypta auk kr. 3.800.- fyrir þinglýsingu kaupsamnings.
Kaupandi tekur lán hjá bankastofnun / íbúðalánasjóði. Lántökugjald eru annars breytilegt eftir lánastofnunum en ávallt greiðast kr. 3.800.- fyrir þinglýsingu á hverju skjali.
Umsýslugjald fasteignasölunnar er kr. 69.900.- krónur m/ vsk sem greiðist við undirritun kaupsamnings.