Jóninnuhagi 2 íbúð 203

600 Akureyri

Ásett verð: 69.900.000 kr.

Jóninnuhagi 2 íbúð 203
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
86,8 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2021
Fermetraverð
805.300 kr.

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Jóninnuhagi 2 íbúð 203 - Falleg 4ra herbergja íbúð með sérinngangi á efri hæð í vesturenda í litlu fjölbýlishúsi syðst í Hagahverfi - stærð 86,8 m²

** Eignin er laus til afhendingar við undirritun kaupsamnings **

- Fallegt útsýni er úr íbúðinni.

- Vandaðar innréttingar frá GKS, svartar plastlagðar, Nero oak.

- Hvítar innihurðir.

- Innbyggður ísskápur með frysti og uppþvottavél fylgja með við sölu eignar.

- Hljóðdempandi plötur í öllum loftum íbúðarinnar nema á baðherbergi.

- Húsið er steypt og var íbúðin tekin í notkun árið 2021.

Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og sér geymslu.

Sameiginlegt tæknirými er undir stigapallinum.

Forstofa og gangur eru með ljósu harðparketi á gólfi og svörtu opnu fatahengi með skúffu.

Eldhús , er með vandaðri L-laga svartri plastlagðri innréttingu (Nero oak) með grárri borðplötu og svörtum vaski. Mjúklokun er á skúffum og skápum. Uppþvottavél og ísskápur með frysti eru innbyggð í innréttingu og fylgja með við sölu eignar.

Stofa og eldhús eru í opnu rými þar sem ljóst harðparket er á gólfi, gluggar til tveggja átta og rennihurð út á steyptar suðursvalir, skráðar 7,6 m² að stærð. Innfelld lýsing er í lofti.

Hjónaherbergi er með ljósu harðparketi á gólfi og svörtum sexföldum fataskáp. Stærð svefnherbergis er skv. teikningum 11,9 m².

Svefnherbergin eru tvö , bæði með ljósu harðparketi á gólfi og tvöföldum svörtum fataskápum. Hvort herbergi er skv. teikningum 8,7 m².

Baðherbergi er með gráum flísum á gólfi og hluta veggja, svartri plastlagðri innréttingu og speglaskáp, upphengdu wc og walk-in sturtu. Stæði er í innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara.

Sérgeymsla , merkt 0204 fylgir íbúðinni og er hún á sömu hæð, skráð 5,3 m² að stærð. Þar eru flísar á gólf og opnanlegur gluggi.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.