Holtsbúð 39

210 Garðabær

Ásett verð: 159.900.000 kr.

Holtsbúð 39
Tegund
Einbýlishús
Stærð
180,199999237061 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
1974
Fermetraverð
887.347 kr.

Lýsing

Jason Kristinn Ólafsson fasteignasali í síma 7751515 og Betri Stofan kynna: Holtsbúð 39, mikið endurnýjað 180,2 fm einbýlishús á einni hæð með fjórum svefnherbergjum, garðskála og heitum potti. Miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu.

Sjón er sögu ríkari.

EIGNIN GETUR VERIÐ LAUS VIÐ KAUPSAMNING

Eignin skiptist í anddyri, gestasnyrtingu, þrjú svefnherbergi, fataherbergi, baðherbergi, eldhús, rúmgóðar stofur, þvottahús ásamt þurrgufu og upphitaðan garðskála.

Bílskúrnum hefur verið breytt í sjónvarpsrými , unglingaherbergi sem nýtist sem fjórða svefnherbergið og geymslu .

Gestasnyrtingin er nýlega endurnýjuð. Baðherbergið er með sturtuklefa, upphengdu salerni, fallegri innréttingu, flotuðu gólfi og opnanlegum glugga.

Aðalsvefnherbergið er með fataherbergi inn af og tvö önnur svefnherbergi eru í aðalhúsinu.

Eldhúsið hefur verið endurnýjað með vönduðum tækjum og rúmgóðum vaski. Það er opið í báða enda og tengist stórri og opinni stofu.

Nýlegt plastparket er á stofu, eldhúsi og svefnherbergjum.

Skipt hefur verið um ofna að hluta.

Garðskálinn er upphitaður og með hellulögðu gólfi.

Úr bílskúrshlutanum er útgengt í skjólgóðan bakgarð með timburverönd og heitum potti.

Fallegt útsýni er frá svefnherbergjunum og bakgarðinum.

Garðurinn er stór og vel við haldinn. Tveir pallar eru við húsið, stærri pallur fyrir framan og minni pallur fyrir aftan. Falleg timburgirðing er umhverfis lóðina.

Innkeyrslan er mjög rúmgóð og hellulögð, með snjóbræðslu að hluta, sett hefur verið upp hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla.

Húsinu hefur verið vel við haldið og það töluvert endurnýjað að innan. Einnig eru möguleikar á frekari stækkun hússins

Nánari upplýsingar veitir Jason Kristinn Ólafsson Löggiltur fasteignasali, í síma 775-1515, tölvupóstur jason@betristofan.is.