Naustavör ,

200 Kópavogur

Ásett verð: 249.000.000 kr.

Naustavör ,
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
212,8 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Byggingarár
2018
Fermetraverð
1.170.113 kr.

Lýsing

Jason Kristinn, sími 7751515 - og Betri Stofan kynna með stolti: stórglæsilega 213,0 fermetra 5 herbergja íbúð á efstu hæð auk 103,2 fermetra þakverandar með heitum potti og virkilega fallegu útsýni á einstökum stað við Naustavör í Kópavogi. Sér bílastæði með rafhleðslustöð í lokaðri og upphitaðri bílageymslu fylgir eigninni.

Þaksvalir eru yfirbyggðar að hluta á mjög vandaðan máta og glæsilegt útsýni er frá eigninni yfir smábátahöfnina, út á sjóinn, að Öskjuhlíð og víðar.

Eignin er öll innréttuð á afar vandaðan og smekklegan máta með hvítum- og eikarinnréttingum, vönduðum flísum og parketi, gólfhitakerfi, aukinni lofthæð að hluta og innbyggðri og óbeinni lýsingu í loftum.

Eignin verður eingöngu sýnd í einkasýningu þeim sem bóka tíma.

Lýsing eignar:

Forstofa : stór, flísalögð og með fataskápum á heilum vegg.

Þvottaherbergi : innaf forstofu um rennihurð, flísalagt gólf og innrétting með vaski.

Hjónaherbergi , stórt, parketlagt og með gluggum í tvær áttir og útgengi í sólskála með heitum potti og þaðan á stórar þaksvalir með mjög fallegu útsýni. Fataherbergi , parketlagt og með fataskápum. Baðherbergi , flísalagt gólf og veggir, handklæðaofn, innrétting, veggskápar, vegghengt wc, stór flísalögð sturta með sturtugleri og innbyggðum tækjum í vegg og útgengi í sólskála með heitum potti og þaðan á mjög stórar þaksvalir með mjög fallegu útsýni.

Hol : um rennihurð úr forstofu, er stórt og parketlagt.

Búr : innaf holi, parketlagt og með innréttingu.

Baðherbergi II : flísalagt gólf og veggir, innrétting, speglaskápar með lýsingu, handklæðaofn, vegghengt wc. og flísalögð stór sturta með sturtugleri og innbyggðum tækjum í vegg.

Barnaherbergi I : rúmgott, parketlagt og með innbyggðum fataskápum. Mjög fallegt útsýni er úr herberginu yfir smábátahöfnin.

Barnaherbergi II : stórt, parketlagt og með fataskápum. Mjög fallegt útsýni er úr herberginu yfir smábátahöfnin.

Samliggjandi stofu r: mjög stórar og bjartar með aukinni lofthæð með innbyggðri og óbeinni lýsingu, stórum gluggum og útgengi á stórar þaksvalir með mjög fallegu útsýni. Mögulegt er að setja kamínu í stofu.

Eldhús : flísa- og parketlagt með mjög miklum og fallegum hvítum + eikarinnréttingum með gleri á milli skápa og kvartsteini á borði. Innbyggð uppþvottavél, gert ráð fyrir tvöföldum ísskáp með klakavél og góður tækja- og búrskápur. Stór eyja með kvartsteini á borðum og köntum, góðum hirslum og spanhelluborði með hangandi háfi yfir.

Í kjallara hússins eru:

Sér bílastæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu með rafhleðslustöð .

Sérgeymsla, sem er 8,3 fermetrar að stærð.

Sameiginleg hjólageymsla.

Húsið að utan er klætt með áli og því viðhaldslítið. Sameign er öll mjög snyrtileg og rafmagnsopnun er á hurðum í sameign hússins.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á mjög fallegum útsýnisstað í eftirsóttu hverfi við Naustavör á Kársnesinu í Kópavogi.

Lóðir húsanna eru allar mjög stórar og mikill fjöldi bílastæða fylgir hverju húsi.

Frábærar gönguleiðir eru í næsta nágrenni við sjávarsíðuna. Stutt yfir í Sky Logoon og innan örfárra ára kemur brú yfir Fossvoginn sem styttir gönguleiðina til Reykjavíkur.

Nánari upplýsingar veitir Jason Kristinn Ólafsson Löggiltur fasteignasali, í síma 7751515, tölvupóstur jason@betristofan.is.