Djúpahraun 9

805 Selfoss

Djúpahraun 9
Tegund
Sumarhús
Stærð
163,100000762939 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Byggingarár
2008

Lýsing

Borg fasteignasala kynnir til sölu fallegt sumarhús ásamt gestahúsi og geymslu við Djúpahraun í Grímsnesinu. Aðalhúsið skiptist í forstofuhol með flísum og búr inn af, Baðherbergi með parketi og innréttingu, sturtuklefa. Svefnherbergi er flísalagt. Hjónaherbergi er flísalagt með fallegum viðarborðum á veggjum. Stofa og eldhús mynda bjart alrými miklum gluggum og útgangi út á verönd. Eldhús er með hvítlakkaðri innréttingu og eyjum með steinborðplötu. Hiti er í gólfum.

Gestahús er parketlagt með viðarklæðningu í lofti. Baðherbergi er flísalagt með innréttingu og sturtuklefa.

Undir gestahúsi er rúmgóð geymsla. í kringum húsið er stór timburlagður pallur með gróðurhúsi og heitum potti. Lóðin er gróinn með grasflöt og miklum trjágróðri sem eigendur hafa gróðursett á undaförnum árum.

Húsið skiptist eftirfarandi samkvæmt fasteignaskrá sumarhús 103,9 fermetrar, gestahús 29,6 og geymsla 29,6, samtals 163,1 fermetra. Húsið stendur á 8500 fermetra eignarlóð og er hitaveita á svæðinu.

Nánari upplýsingar veitir Brandur Gunnarsson löggiltur fasteignasali-löggiltur leigumiðlari í síma 897-1401 brandur@fastborg.is hjá BORG fasteignasölu.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.

3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði