Efstihjalli 7

200 Kópavogur

Ásett verð: 64.900.000 kr.

Efstihjalli 7
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
94 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1972
Fermetraverð
690.426 kr.

Lýsing

Jason Kristinn fasteignasali í síma 7751515, jason@betristofan.is og Betri Stofan kynna: Efstihjalli 7 efri hæð þar sem allt hefur verið tekið í gegn. Að utan hefur húseignin alveg verið tekin í gegn. Gluggar endurnýjaðir, húsið var múrgert og málað,vatnslagnir og dren endurnýjað sem og þak og rennur og húsið málað.

Um er að ræða snyrtilega 4ra herbergja íbúð á frábærum stað í grónu hverfi í Kópavogi. Suðursvalir. Eignin er skráð 93,9 fm og er vel skipulögð. Eignin skiptist í anddyri, hol, eldhús, baðherbergi, 3 svefnherbergi, borðstofu, stofu og sér geymslu. Aðeins 5 mínútna gangur í leikskóla, skóla og matvöruverslun .

Lýsing:

Gengið er inn í rúmgott flísalagt FORSTOFU sem tengir saman eignina. Á vinstri hönd er eldhús og stofa og hægra megin svefnherbergi og baðherbergi. ÚTSÝNI til Esju úr svefnherbergjum.

STOFA er rúmgóð með nýpússuðu parket á gólfi og útgengt út á rúmgóðar suðursvalir.

ELDHÚS er með hvítri innréttingu og góðu skápaplássi. Borðkrókur við glugga sem eru nýir. Pláss fyrir uppþvottavél eða þvottavél.

BAÐHERBERGI er flísalagt í hólf og gólf með flísum og baðkar. Þvottaaðstaða er inná baðherbergi og einnig í kjallara.

SVEFNHERBERGI 1 er með rúmgóðum fataskápum. Parketdúkur á gólfum herbergja.

SVEFNHERBERGI 2 er með fataskáp.

SVEFNHERBERGI 3 er án fataskáps

SÉRGeymsla er í kjallara er skráð 6,8 fm.

Í kjallara er einnig snyrtilegt þvottahús , hjólageymsla og vagnageymsla.

Staðsetning eignarinnar er góð og stutt er í skóla, verslanir og þjónustu.

Sunnan megin við húsið er sameiginlegur garður og fjöldi bílastæða fyrir framan hús.

Nánari upplýsingar: Jason Kristinn Ólafsson s. 775 1515 löggiltur fasteignasali, jason@betristofan.is og Guðbjörg Guðmundsdóttir s.899 5533 löggiltur fasteignasali, gudbjorg@betristofan.is