Grensásvegur 12
108 Reykjavík
Ásett verð: 550.000 kr.

- Tegund
- Atvinnuhúsnæði
- Stærð
- 140,9 m²
- Herbergi
- 0
- Svefnherbergi
- 0
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 1968
- Fermetraverð
- 3.903 kr.
Lýsing
***VALHÖLL FASTEIGNASALA KYNNIR * TIL LEIGU 140FM. BJART OG NÝLEGA ENDURNÝJAÐ HÚSNÆÐI Á JARÐHÆÐ***
TIL LEIGU - húsnæði á jarðhæð/götuhæð við Grensásveg, Reykjavík. Birt stærð er 140,9 fm.
Húsnæðið er á jarðhæð/götuhæð í framhúsinu með góðum síðum gluggum út að götu og í norðurátt, með mikið auglýsingagildi.
Tveir inngangar eru að framanverðu inn í eignarhlutann.
Nánari lýsing. Húsnæðið var allt endurgert fyrir nokkrum árum og er mjög bjart og snyrtilegt. Góð lofthæð er í húsnæðinu. Kerfisloft er í innri hluta eignarinnar.
Hið leigða skiptist í opið rými fremst og innri hlutinn er gott opið rými með snyrtingu, kaffistofu og geymslu . Gólf eru flísalögð. Góð loftræsting er húsinu.
Bílastæði beint fyrir framan eignina og næg stæði á baklóð.
Húsnæðið hentar vel fyrir hvers konar rekstur, t.d. hárgreiðslustofu, blómabúð, hvers konar, skrifstofuhald o.fl. o.fl.
Nánari upplýsingar veita:
Agnar Agnarsson löggiltur fasteignasali / s.8201002 / agnar@valholl.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.