Lindasíða 2 - 104

603 Akureyri

Ásett verð: 47.900.000 kr.

Lindasíða 2 - 104
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
67,7 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
1992
Fermetraverð
707.533 kr.

Lýsing

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Lindasíða 2 - 104

** Eignin er laus til afhendingar við samningsgerð **

Góð tveggja herbergja íbúð á jarðhæð í góðu fjölbýlishúsi fyrir 60+, sameiginlegur tengigangur og tengihús yfir í þjónustumiðstöðina í Bugðusíðu 1 og líkamsræktina Bjarg.

Eignin skiptist í forstofu, geymslu, baðherbergi með þvottaaðstöðu, svefnherbergi, stofu og eldhús í opnu rými. Úr eldhúsi er farið út í sólskála og þaðan út á hellulagða verönd.

Forstofa með parket á gólfi og fataskáp.

Geymsla er innan íbúðar með parket á gólfi.

Baðherbergi með þvottaaðstöðu, flísar á veggjum að hluta, innrétting við vask og tengi fyrir þvottavél í innréttingu.

Stofa og eldhús í opnu rými með parket á gólfi. Í eldhúsi er ljós innrétting með ágætu vinnuplássi. Gengið út í lokaða sólstofu úr eldhúsi og úr sólstofu út á hellulagða verönd.

Svefnherbergi er rúmgott með góðum skápum og parketi á gólfi.

Annað:

- Parket (2021) og nýleg blöndunartæki á baði og eldhúsi.

- Góð bílastæði

- Ljósleiðari.

- Snyrtileg samegin.

- Þjónustugangur er tengdur við Bjarg þar er bæði heitur matur, afþreying og líkamsrækt.

- Eign fyrir 60 ára og eldri.

- Íbúðin er laus við afhendingu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Frekari upplýsingar:

olafur@byggd.is

greta@byggd.is

halla@byggd.is

bjorn@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.

S:464 9955