Barðastaðir 13
112 Reykjavík
Ásett verð: 74.900.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 91,5 m²
- Herbergi
- 3
- Svefnherbergi
- 2
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 1999
- Fermetraverð
- 818.579 kr.
Lýsing
LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir virkilega fallega og vel skipulagða 3.herbergja íbúð á efstu hæð í snyrtilegu fjölbýlishúsi við Barðastaði 13 í Grafarvoginum. Fallegt útsýni frá svölum út á Snæfellsjökul og Faxaflóa. Samkvæmt HMS er íbúðin 91.5 m2 þar af 6,1 m2 geymsla.
* Parket og innihurðar voru endurnýjaðar 2024
Nánari lýsing:
Forstofa með flísalögðu gólfi og fataskáp
Eldhúsið er opið inn í stofu með efri og neðri skápum. gas helluborð, ofn og innbyggður örbylgjuofn í vinnuhæð, gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu.
Stofa og borðstofa í einu rými, með útgengt út á svalir sem snúa í suðvestur.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og útgengi út á svalir til suð-vesturs.
Barnaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum, hvít innrétting, upphengt salerni og handklæðaofn, stór flísalögð sturta, þvottaaðstaða inn á baðherbergi með pláss fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla, í kjallara, málað gólf og góðar lausar hillur.
Í sameign er hjóla- og vagnageymsla. Stigagangurinn er mjög snyrtilegur
Eignin er afar vel staðsett. Stutt í leikskóla og grunnskóla og önnur þjónusta innan seilingar. Stutt í stofnleiðir og golfvöllurinn Korpa við hliðina. Einstök náttúrupardís umlykjandi og fallegar göngu- og hjólaleiðir meðfram sjónum um og við Geldinganes og víðar.
Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is