Njálsgata 19

101 Reykjavík

Ásett verð: 74.000.000 kr.

Njálsgata 19
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
80,1 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
2005
Fermetraverð
923.845 kr.

Lýsing

LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu bjarta og glæsilega 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í nýlegu fjölbýlishúsi með lyftu í miðbæ Reykjavíkur. Íbúðin er vel skipulögð með fallegum innréttingum, eikarparketi og svölum með útsýni í átt að Hallgrímskirkju. Húsinu fylgir fallegur bakgarður og staðsetningin er frábær þar sem öll helsta þjónusta, verslanir, veitingastaðir og menningarlíf miðborgarinnar eru í göngufæri.

Eignin skiptist í forstofu, stofu og eldhús í opnu alrými, svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðinni fylgir sérgeymsla í kjallara auk aðgangs að sameiginlegu þvottahúsi á hverri hæð og hjólageymslu.

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT en annars veiti ég allar frekari upplýsingar í síma 663 2300 eða thorey@fastlind.is

Nánari lýsing

Forstofa er opin með góðum fataskáp, eikarparket á gólfi.

Stofa er björt og rúmgóð með útgengi á svalir sem snúa í átt að Hallgrímskirkju, eikarparket á gólfi.

Eldhús er opið við stofu með fallegri eikarinnréttingu, góðu skápa- og vinnuplássi, eldhústækjum og tengi fyrir uppþvottavél, eikarparket á gólfi.

Svefnherbergi er bjart og rúmgott með góðum eikarfataskáp, eikarparket á gólfi.

Baðherbergi með sturtuklefa og upphengdu salerni, flísar á gólfi og veggjum.

Sameign er björt og snyrtileg með lyftu og sameiginlegu þvottahúsi á hverri hæð. Í kjallara e r hjólageymsla og sérgeymsla sem fylgir íbúðinni.

Eignin er staðsett í hjarta Reykjavíkur þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir, kaffihús, veitingastaði og fjölbreytt menningarlíf. Frábær staðsetning fyrir þá sem vilja njóta þess að búa miðsvæðis með allt það helsta í göngufæri.

Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 663 2300 eða á thorey@fastlind.is.

Á heimasíðunni minni [link] má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.