ÚLFSSTAÐASKÓGUR 37

701 Egilsstaðir

Ásett verð: 48.000.000 kr.

ÚLFSSTAÐASKÓGUR 37
Tegund
Sumarhús
Stærð
54 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2008
Fermetraverð
888.889 kr.

Lýsing

BYR fasteignasala kynnir í einkasölu ÚLFSSTAÐASKÓGUR 37, 701 Egilsstaðir. Sumarhús/heilsárshús í Úlfsstaðaskógi 37, sunnan/innan við Egilsstaði.

Húsið er staðsett í u.þ.b. 10 mínutna fjarlægð frá Egilsstöðum. Smellið hér fyrir staðsetningu.

Húsið er timburhús, hæð og svefnloft byggt árið 2008, hæð 51.4 m², svefnloft 21.1 m², skráð flatarmál 54.0 m² samkvæmt skráningu HMS.

Skipulag : Anddyri, alrými með stofu, eldhúsi og forstofu, tvö herbergi, baðherbergi, geymsla og svefnloft.

Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 483 5800 |

Nánari lýsing:

Anddyri er opið við alrými, harðparket á gólfi, þaðan liggur stigi upp á svefnloft, gluggi er á svefnlofti.

Alrými með stofu, eldhúsi og forstofu, harðparket á gólfi, tvöfaldur skápur er í forstofu, útgengt er út á timburverönd úr stofu.

Eldhús , innrétting, eldavél, stálvaskur, gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu, borðkrókur.

Herbergi I, harðparket á gólfi.

Herbergi II, harðparket á gólfi, veggfast rúm.

Baðherbergi, dúkur á gólfi, vaskinnrétting, speglaskápur, salerni og sturta, handklæðaofn og gluggi.

Geymsla , harðparket á gólfi.

Innbú fylgir með bústaðnum utan persónulegra muna.

Úlfsstaðaskógur 37 er sumarhús/heilsárshús, timburhús á steyptum undirstöðum, gólf er timburgólf. Þak er timburþak klætt með járni. Undirneglingu vantar í þakskyggni.

Gluggar og hurð eru úr timbri. Timburverönd u.þ.b. 43.4 m²​ samkvæmt skráningu​​​​, umlykur húsið á alla vegu, heitur pottur er á verönd, skjólveggir eru við heitan pott.

Lóð er gróin að mestu leyti náttúrulegur lággróður, birki, móar og lyng, malarbílaplan er við húsið, pláss fyrir tvær bifreiðar. Rotþró er á lóð.

Lóðin er eignarlóð 4.074,0 m² að stærð, í skipulögðu sumarbústaðalandi í Úlfsstaðaskógi.

Samkvæmt greinargerð og skilmála, Úlfsstaðir Fljótsdalhéraði.

Stærð húsa skal vera á bilinu 25-90 brúttó m²​​​​​​. Þau skulu vera einnar hæðar með einföldu risi og byggð úr timbri. Skjólveggi skal nota sparlega, ekki er heimilt að byggja girðingar innan svæðis. Á lóðinni skulu vera bílastæði fyrir a.m.k. tvo bíla. Ekki er heimilt að að flytja inn á svæðið fjölærar plöntur sem geta sáð sér út og raskað náttúrulegu gróðurfari þess. Hjólhýsi skúra og önnur slik mannvirki er ekki heimilt að hafa á svæðinu.

Smellið hér fyrir Deiliskipulag Frístundabyggð í Landi Úlfsstaða

Smellið hér fyrir skráningu eignar í landeignaskrá land númer 199367.

Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:

Fasteignanúmer 231-6132. Úlfsstaðaskógur 37, Múlaþing.

Stærð: Sumarbústaður 54.0 m².

Brunabótamat: 36.850.000 kr.

Fasteignamat: 28.950.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat 2026: 29.500.000 kr.

Byggingarár: 2008.

Byggingarefni: Timbur.

Eignarhald:

01.0101 Íbúð 51.4 Brúttó m². 01.0102 Svefnloft 21.1 Brúttó m²​​​​​​. 01.0103 Verönd 43.4 Brúttó m²​​​​​​.

Landnúmer 199367. Sumarbústaðaland 4.074,0 m²