Skógarbyggð 6

320 Reykholt í Borgarfirði

Ásett verð: 950.000 kr.

Skógarbyggð 6
Tegund
Lóð
Stærð
4648 m²
Herbergi
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Fermetraverð
204 kr.

Lýsing

Skógarbyggð 6, 320 Borgarbyggð (Sumarhúsalóð)

Um er að ræða 4.648 fm leigulóð í landi Bjarnastaða í Hvítársíðu, aðeins 5-10 min akstur frá Húsafelli. Lóðin er leigð til 25 ára í senn með forleigurétti áfram að þeim tíma loknum. Stofngjald í upphafi eru 950.000 kr. Árlegt leigugjald lóðar er ca. 220.000 kr. Hitaveita kostar um 880.000 kr í tengigjald og mánaðargjaldið er um 9-10 þúsund krónur. Gámastöð fyrir sorp er á svæðinu.

Vatn og rafmagn við lóðarmörk, leigusalar sjá um að vegir séu akfærir að lóðarmörkum, bílastæði skulu vera innan lóðarmarka og sér leigutaki um að útfæra þau. Hitaveita er á svæðinu og er sérstakt félag um rekstur hennar. Möguleiki er því fyrir leigutaka að fá inn heitt vatn gegn greiðslu.

Mjög virkt sumarhúsafélag er á svæðinu og er Facebook síða þar sem hægt er að sjá með færð og þjónustu á hverjum tíma. Leigusalar sjá um að mokstur og sinna því vel. Hitaveitan er í eigu sumarhúsaeigenda og er sér Facebook síða um þau mál. Lóðin snýr á móti suðri, er skógi vaxin, með fallegu útsýni yfir sveitina í kring og gott skjól fyrir norðanáttinni.

Helstu ákvæði til byggingar skv. skipulagi, sjá nánar í myndum texta og skilmála:

Hámarksstærð húsa miðast við 150 fm í heildarbyggingarmagn.

Hámarsstærð smáhúsa verði ekki meiri en 20 fm.

Hæsti punktur þaks verði ekki hærri en 5,5 m yfir aðalgólfi.

Þakhalli 15-25 gráður.

Sefna mænisása skal samræmd.

Dökkir jarðlitir æskilegir á öllum mannvirkjum.

Mannvirki séu ekki nær lóðarmörkum en 10 metra.

Upplýsingar gefa:

Heimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali, s. 893 1485, netfang: heimir@fasteignaland.is