Bergvík 7

800 Selfoss

Ásett verð: 67.900.000 kr.

Bergvík 7
Tegund
Raðhús
Stærð
99,3 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2023
Fermetraverð
683.787 kr.

Lýsing

ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna

Fallegt og vel skipulagt raðhús í nýju hverfi á Selfossi.

Húsið er timburhús, klætt að utan með lituðu báruáli og Stac Bond klæðningu í bland, bárujárn er á þaki. Heildarstærð eignarinnar er 99,3m2 og skiptist hún í forstofu, þvottahús, baðherbergi, 3 svefnherbergi, stofu og eldhús í opnu rými.

Nánari lýsing:

Flísar eru á gólfi í forstofu og þar er fataskápur. Þvottahúsið er flísalagt, þar er góð innrétting fyrir tæki í vinnuhæð.

Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og hluti veggja, þar er rúmgóð gólfsturta með innbyggðum tækjum og fín innrétting.

Herbergin eru parketlögð og eru skápar í þeim öllum.

Stofa og eldhús eru í opnu rými, smekkleg innrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél er í eldhúsi en í stofu er hurð útá baklóð.

Innfelld ledljós eru í flestum rýmum.

Lóðin er þökulögð og mulningur er í innkeyrslu.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga á arborgir@arborgir.is eða í síma 482-4800.