Laufásvegur 19
101 Reykjavík
Ásett verð: 79.900.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 91,5 m²
- Herbergi
- 3
- Svefnherbergi
- 1
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 1933
- Fermetraverð
- 873.224 kr.
Lýsing
Trausti fasteignasala kynnir í einkasölu LAUFÁSVEGUR 19, 101 Reykjavík . Björt og rúmgóð 3ja herbergja íbúð á 2. hæð á eftirsóttum stað í miðborg Reykjavíkur. Eignin skiptist meðal annars í rúmgóða stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, svefnherbergi, og geymslu-/þvottarými innan íbúðar.
Eignin er skráð alls 91,5 fm. samkvæmt HMS . - Smelltu hér til að sækja söluyfirlit
Nánari lýsing:
Forstofa : Gengið er inn í forstofu með flísum á gólfi. Þaðan er komið inn á parketlagðan gang sem tengir saman helstu rými íbúðarinnar.
Stofa 1 : Björt og rúmgóð stofa með stórum gluggum og parketi á gólfi. Góð aðstaða fyrir setustofu og borðstofu.
Stofa 2 : Björt og rúmgóð stofa inn af Stofu 1 með tvöfaldri glerhurð, stórum glugga og parketi á gólfi. Stofan er í dag nýtt sem skrifstofu eða aukaherbergi en býður einnig upp á möguleika á nýtingu sem annað svefnherbergi.
Eldhús : Rúmgott eldhús með eldhúsinnréttingu, góðu skápaplássi og flísum á gólfi. Innbyggður ísskápur, bakaraofn, helluborð, háfur og tengi fyrir uppþvottavél. Aðstaða fyrir eldhúsborð og útgengt á skjólgóðum timburpalli.
Svefnherbergi : Rúmgott svefnherbergi með parketi á gólfi, stórum glugga og fataskáp. Inn af herberginu er geymslu-/þvottarými með glugga, parketi á gólfi og tengingu fyrir þvottavél. Rýmið býður einnig upp á möguleika á nýtingu sem fataherbergi (e. walk-in closet).
Baðherbergi : Flísalagt baðherbergi með baðkari, upphengdu salerni og handlaug með innréttingu.
Pallur : Rúmgóður og skjólgóður timburpallur með útsýni yfir gróið nærumhverfi. Útgengt er á pallinn úr eldhúsi.
*Olíuborið viðarparket er á öllum gólfum íbúðarinnar, að undanskildum eldhúsi, baðherbergi og forstofu, þar eru flísar.*
Nýlegar endurbætur :
2020 Húsið múrað og heilmálað að utan.
2019 Nýjir dyrasímar með myndavél.
2017 Skipt um þak og þakrennur endurnýjaðar.
2014 Rafmagnstafla í sameign færð og endurnýjuð.
Eignin er staðsett í eitt af rótgrónustu og eftirsóttustu íbúðarhverfi miðborgarinnar. Hér er stutt í alla helstu þjónustu, verslanir, veitingastaði og menningarlíf borgarinnar. Í næsta nágrenni eru falleg útivistarsvæði, meðal annars Hljómskálagarðurinn og Tjörnin. Einstakt tækifæri fyrir þá sem vilja njóta þess besta sem miðborg Reykjavíkur hefur upp á að bjóða.
Allar nánari upplýsingar veita :
Anton Y. Sakornram , aðstoðarmaður fasteignasala, s. 779-5463 / anton@trausti.is
Auðun Ólafsson , löggiltur fasteignasali, s. 894-1976 / audun@trausti.is
Bóka verðmat - [link] - Trausti á Facebook