Heiðarvegur 12

730 Reyðarfjörður

Ásett verð: 59.900.000 kr.

Heiðarvegur 12
Tegund
Einbýlishús
Stærð
182,4 m²
Herbergi
6
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
1959
Fermetraverð
328.399 kr.

Lýsing

Heiðarvegur 12, Reyðarfirði: Rúmgott og bjart 182,4 m² einbýlishús á þremur pöllum ásamt stórum sambyggðum bílskúr á fallegum útsýnisstað.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // heimir@fastaust.is

Eignin skiptist á þrjá palla og hefur fengið þónokkrar endurbætur að innan sem utan á síðustu árum, þar á meðal nýtt rafmagn og nýjar vatnslagnir að mestu leyti. Á efsta palli eru lítið hol, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Á miðpalli má finna forstofu, eldhús, stofu, borðstofu og lítið svefnherbergi sem nú nýtist sem skrifstofa. Á neðsta palli er nýlega endurnýjað þvottahús, annar inngangur og niðurgrafin geymsla. Bílskúrinn sambyggður húsinu. Talsvert af byggingarefni (m.a. parket, flísar og hurðir) fylgir með í kaupum til að klára framkvæmdir á mið- og neðri hæð.

- Talsvert endurnýjuð að innan (rafmagn, lagnir, yfirborðsefni)

- Nýtt þakjárn og pappi 2016 og hús málað að utan 2020

- Frábært útsýni yfir fjöll og gróður

- Ljósleiðararör komið inn í hús

- Mikið af byggingarefni fylgir með til að klára ófrágengin rými

SKIPULAG EIGNAR:

- MIÐPALLUR:

Forstofa : Björt forstofa með viðarparketi á gólfi, pláss fyrir yfirhafnir og opið inn í stofu. (Flísar fyrir forstofu fylgja með ólagðar).

Stofa og borðstofa : Rúmgott og bjart alrými með viðarparketi á gólfi og skásettu lofti. Stórir gluggar hleypa inn mikilli dagsbirtu og bjóða upp á fallegt útsýni yfir fjöll og nærliggjandi hús. Rýmið rúmar vel bæði setustofu og stórt borðstofuborð.

Eldhús : Viðarlitað gólfefni, upprunaleg eða eldri innrétting með grænum neðri skápum og viðarlituðum efri skápum. Innbyggður ofn, uppþvottavél og stór stálísskápur. Horngluggar gefa góða birtu.

Skrifstofa/lítið svefnherbergi : Lítið herbergi sem nú er nýtt sem skrifstofa. Viðarparket á gólfi, pláss fyrir skrifborð og hillur.

- EFSTI PALLUR:

Hol : Ljóst viðarparket á gólfi, tengir saman svefnherbergi hæðarinnar, nýjar hvítar innihurðir.

Hjónaherbergi : Rúmgott með ljósu viðarparketi á gólfi, stórum fataskápum og fallegu viðarþili við höfðalag. Gott útsýni til fjalla.

Svefnherbergi 2 : Bjart herbergi nýtt sem barnaherbergi með ljósu viðarparketi á gólfi.

Svefnherbergi 3 : Einnig á efsta palli, veggir heilsparslaðir og nýtt parket lagt.

Baðherbergi : Ljósar flísar á gólfi og brúnmynstraðar á veggjum. Sturtuklefi, salerni, handklæðaofn, hvít innrétting og lítill opnanlegur gluggi.

- NEÐSTI PALLUR:

Stigagangur og kjallari : Teppalagður stigi liggur niður í kjallararými þar sem gólf eru að hluta til ófrágengin eða steypt. Rýmið tengir saman þvottahús og aðra hluta neðri hæðar.

Þvottahús : Rúmgott og endurnýjað þvottahús með flögulögðu epoxý gólfefni. Stór grá innrétting með dökkri borðplötu og góðu vinnuplássi.

Geymsla og annar inngangur : Á neðsta palli er annar inngangur (ný útidyrahurð fylgir) ásamt niðurgrafinni geymslu.

Bílskúr : Bílskúr er sambyggður eigninni. Vatnsdæla er staðsett undir stétt með aðgengi úr bílskúr.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband:

Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // heimir@fastaust.is

Skráning eignarinnar skv. HMS:

Fasteignanúmer : F2177157

Stærð : Einbýlishús 182,4 m²

Byggingarár : 1959

Byggingarefni : Steypa

Gildandi fasteignamat : 50.750.000 kr.

Brunabótamat : 79.350.000 kr.

Lóð : Íbúðarhúsalóð í eigu Fjarðabyggðar, stærð lóðar er 771,0 m²

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1 . Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaupendur) 0,8% (einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2 . Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.

3 . Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 m.vsk.

Skoðunarskylda kaupenda:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.

Fasteignasala Austurlands skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Fasteignasala Austurlands // Austurvegi 21, 730 Reyðarfirði