Karlsrauðatorg 4

620 Dalvík

Ásett verð: 65.000.000 kr.

Karlsrauðatorg 4
Tegund
Einbýlishús
Stærð
134,399999809265 m²
Herbergi
6
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Byggingarár
1909
Fermetraverð
483.631 kr.

Lýsing

Hannes Steindórsson og Lind fasteignasala kynna með stolti:

Einstaklega fallegt og vel staðsett einbýlishús við Karlsrauðatorg 4.

Búið er að taka allt húsið í gegn og endurnýja á mjög vandaðan hátt. Einungis fagmenn og sérfræðingar í uppgerð á gömlum húsum komu að verkinu.

Burðarvirki, þak, klæðning, gluggar, rafmagn, ofnar, lagnir, gólf, dren og meira til endurnýjað. Það sem haldið var í var eingöngu það sem hefur fegurðargildi að mati eiganda, bitar í lofti, gólfefni á stofu og stigi.

Stuttur akstur á þrjú skíðasvæði, þyrluskíði á tröllaskaga, snjósleðaparadís og annarar útivistar.

Fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, kamína í stofu. Húsið er með gistileyfi II fyrir 8 manns sem hefur ekki verið nýtt.

Aðalhæð.

Forstofa: Flísalögð rúmgóð forstofa.

Baðherbergi: Við forstofu er baðherbergi með sturtu, salerni og handlaug í stíl við aldur hússins.

Úr forstofu er komið inn í hol, opið inn í stofu og eldhús frá holi.

Stofa og borðstofa: Rúmgóð stofa með fallegum upprunalegum viðar fjölum á gólfi, opið inní borðstofu með svarttri kamínu fyrir miðju.

Eldhús: Opið úr eldhúsi inn í borðstofu, viðarinnrétting með fallegri handlaug, innbyggður ísskápur ásamt gas helluborði, upprunarlegar fjalir á gólfi.

Efri hæð:

Svefnherbergi: Þrjú svefnherbergi á annari hæð, hol fyrir framan svefnherbergi.

Kjallari:

Sérinngangur í kjallara en einnig stigi milli hæða.

Baðherbergi: Í kjallara er annað baðherbergi í sama stíl og baðherbergið á aðalhæð, rými fyrir þvottavél og þurrkara auk geymslu..

Svefnherbergi: Eitt svefnherbergi í kjallara með litlu fataherbergi, svartir bitar í lofti.

Ath: Eignin er 12 fm minni en skráningin gefur til kynna, skúr sem er skráður hjá fmr er ekki til staðar.

Allar upplýsingar veitir : Gunnar Valsson lögg fasteignasali í s: 699-3702 eða gunnar@fastlind.is / Hannes Steindórsson s.699-5008 hannes@fastlind.is