Hnjúkamói 9, íbúð 0305

815 Þorlákshöfn

Ásett verð: 45.500.000 kr.

Hnjúkamói 9, íbúð 0305
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
50 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
2026
Fermetraverð
910.000 kr.

Lýsing

Fasteignasala Suðurlands kynnir: Hnjúkamói 9, íbúð 0305, Þorlákshöfn. Ný, 45m2 íbúð á 3.hæð, með 1 stóru svefnherbergi, í uppsteyptu fjölbýlishúsi auk 5m2 sér-geymslu og góðum svölum sem snúa í há-suður.

ÍBÚÐIN ER LAUS TIL AFHENDINGAR !

Sjá nánar: [link]

** Hægt er að bóka einkaskoðun og fá allar nánari upplýsingar á fastsud@gmail.com og í síma 483 3424 **

Húsið er fyrsti áfangi svonefnds miðbæjarverkefnis sem verður allt hið glæsilegasta og er staðsett örstutt frá allri helstu þjónustu.

Eignin skiptist svo:

* 1 stórt svefnherbergi með fataskápum . Hurðir, úthliðar og sökklar fataskápa eru hvítar að lit. Stærðir skápa eru skv. teikningum.

* Rúmgott eldhús og stofu í opnu rými. * Utangengt er úr stofunni á svalir sem snúa í há-suður.

* Eldhúsið er með fallegri innréttingu frá Arens (söluaðili, Ormsson). Hurðir og forstykki eru hvít. Borðplötur eru plastlagðar í ljós gráum lit. Eldhúsraftæki eru frá AEG. Ísskápur og uppþvottavél verða innbyggð. Blöndunartæki eru frá Grohe.

* Baðherbergi með fallegri innréttingu frá Arens. Innrétting á baðherbergi afhendist með speglum, skápar eru í hvítum lit, borðplötur eru harðplast. Sturta er með sturtugleri. Blöndunartæki á baði eru frá Grohe. Vegghengt salerni frá Laufen. Sturta með hitastýrðum blöndunartækjum ásamt sturtustöng með haus og handúðara

Flísalögn á baði mun ná upp í loft á tvo veggi og gólf verður flísalagt.

* Þvottavélartengill er á baðherbergi.

* Sér geymsla fylgir íbúðinni.

* Allar hurðir eru hvítar og yfirfelldar. Hurðar innan íbúðar verða án þröskulda.

* Öll gólf nema á baðherbergi eru lögð vönduðu Quick step harðparketi frá Harðviðarval.

* Allar innréttingar eru frá Arens, (söluaðili er Ormsson ehf.) og eru í stöðluðum stærðum, skv. innréttingateikningum.

* Ljós (kúplar) eru á baðherbergi og í eldhúsi. Sjónvarps- og nettenglar í herbergi.

* Dyrasímar skv. teikningum, myndavélasími verður í íbúðinni.

* Stór sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í húsinu. Gólf í sameiginlegri geymslu og sér-geymslum verður lakkað.

* Gólf í stigahúsi eru teppalögð.

Lóð:

* Lóðarfrágangur verður í megindráttum skv. teikningum landslagsarkitekta.

* Snjóbræðsla á göngustígum samkvæmt teikningu.

* Bílastæði verða malbikuð og afmörkuð með máluðum línum.

* Gert verður ráð fyrir að hægt verði að setja hleðslustöðvar við húsið, lagnaleið fyrir hendi.

* Á myndum í auglýsingu má sjá hugmynd að miðbæjarskipulaginu. Hnjúkamói 9 er hús merkt A2 á teikningu **

3-d myndir af íbúð í auglýsingu eru til glöggvunar á útliti innréttinga en ekki skipulagi.

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.

Heimasíða fasteignasölunnar: [link]

Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar:

Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna:

KRÓNU VERSLUN

Apótekarann.

Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)

Vínbúðina.

Super 1 pizza (facebook: super 1 pizza)

Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)

Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.

Caffe Bristól.

Hér er mjög góð heilsugæsla.

Hér er tannlæknir.

Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:

Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn

Tómstundir og afþreying:

Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.

Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.

Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.

Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring

Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.

Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.

Afþreying er hér af ýmsum toga:

hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.

Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi.

Blackbeach tours ([link] er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni.

Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).

Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.

** Allar helstu fréttir úr sveitafélaginu má finna á [link] og á [link]