Lautarvegur 6
103 Reykjavík
Ásett verð: 159.900.000 kr.

- Tegund
- Hæð
- Stærð
- 176,3 m²
- Herbergi
- 4
- Svefnherbergi
- 3
- Baðherbergi
- 2
- Byggingarár
- 2019
- Fermetraverð
- 906.977 kr.
Lýsing
Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515, jason@betristofan.is og Betri Stofan kynna: Lautarvegur 6, nýleg 4ra til 5 herbergja, 176,3 fermetra neðri sérhæð og bílskúr í vönduðu þríbýli á þessum eftirsótta stað stutt frá Borgarspítalanum. Eignin er samtals 176,3 fm þar af bílskúr 26 fm og 10,6 fm sérgeymsla í kjallara .
Bókið einkaskoðun. Seljandi skoðar skipti á sérbýli í 108, 103 og 210.
Frábær staðsetning og nálægt fallegu útivistarsvæði. Stutt í Nauthólsvíkina og Fossvoginn. Úti Inni Arkitektar teiknuðu húsið sem var byggt í kringum árið 2020.
Myndband úr eigninni.
Anddyri er rúmgott , sérinngangur og forstofa með flísum og hiti í gólfi.
Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar, útgengt þaðan út á yfirbyggða verönd (ca 20 fm sem er ekki í fermetratölu eignar) að hluta til (gler lokanir) og þaðan er gengið út á afgirta timburverönd sem snýr í suður. Frá stofu er líka lítill sjónvarpskrókur (hluti af borðstofu á teikningu), einnig er lítið vinnuherbergi við hliðina. Nýtingarlega er því eignin nær 195 fermetrum samtals.
Eldhús og stofa í opnu rými. Vandaðar innréttingar, Miele tæki, stór eyja, span helluborð. Silestone-steinplata á eldhúsborðum og eyju.
Baðherbergi : rúmgott með sturtuaðstöðu og vandaða innréttingu, Gluggi á baði, flísar í hólf og gólf. Gólfhiti.
Aðalsvefnherbergi I: Svefnálma: Rúmgóð hjónasvíta/hjónaherbergi með útgangi út á hellulagða verönd til vesturs, fataherbergi og baðherbergi inn af hjónasvítu, fín sturtuaðstaða og vönduð tæki, flísar á gólfi og veggjum. Gólfhiti. Opnanlegur gluggi.
Svefnherbergi II rúmgott rými með fataskápum. Innramál ca 10 fm
Svefnherbergi III rúmgott rými með fataskápum. Innramál ca 12 fm
Rúmgóð 10,6 fm sérgeymsla í sameign ásamt góðri hjóla- og vagnageymslu og þvottaaðstöðu
Hiti í bílaplani og gangstígum.
Bílskúr er 26 fermetrar, fullbúinn með hita og sjálfvirkum opnara. Rafhleðslustöð í bílskúr. Þetta er bílskúrinn se er fjær aðalinngangi. Bakhurð til að gangaá milli húsa inní bílskúrinn.
Staðsetning er vinsæl, stutt er í gróið svæði í Fossvoginum, ásamt frábærum göngu og hjólaleiðum.
Nýlegar endurbætur:
2026: Forhitari settur fyrir neysluvatn
2025: Múrverk yfirfarið og málað að utan.
2024: Húsið var sílanhúðað að utan
Allar nánari upplýsingar: Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 1515 jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali