Njörvasund 37

104 Reykjavík

Ásett verð: 44.900.000 kr.

Njörvasund 37
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
57,7 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
1953
Fermetraverð
778.163 kr.

Lýsing

** HÉR ER HÆGT AÐ BÓKA SKOÐUN Á EIGNINA **

Þórdís Björk Davíðsdóttur löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna:

Bjarta og fallega 57,7 fm 2ja herbergja íbúð í kjallara í þríbýli við Njörvasund.

Íbúðin hefur fengið gott viðhald og er því frábær fyrstu kaup. Íbúðin flokkast undir ósamþykkt íbúð.

Lánshlutfall bankanna er því ekki líkt og á samþykktri íbúð en lífeyrissjóðir lána einnig.

Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 57,7 fm og er geymsla íbúðar undir stiganum í sameign.

Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk löggiltur fasteigna- og skipasali s: 862-1914 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið thordis@remax.is

SMELLTU HÉR til að sækja öll gögn um eignina

------

SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - Með húsgögnum

SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - ÁN húsgagna

Nánari lýsing eignarinnar:

Komið er inn í íbúðina úr sameign á flísalagðan gang/miðrými sem tengir saman rými íbúðar og er þar fatahengi.

Svefnherbergið er rúmgott og eru fataskápar frá IKEA. Plast parket á gólfi og er filma upp í hálfan gluggann.

Stofan er björt og rúmgóð með gluggum á tvo vegu, plast parket á gólfi og er filma upp í hálfan annan gluggann.

Eldhúsið er með hvítri innréttingu frá IKEA (2020-22), flísum á milli skápa, veggföstum skáp yfir borð aðstöðunni og flísum á gólfi. Borðplata endurnýjuð 2024-25 ásamt því að eyju var bætt við innréttingu.

Baðherbergið er flísalagt með sturtu, handklæðaofni og er gluggi til loftunar.

Þvottahús er sameiginlegt á sömu hæð og hver íbúð er með sína eigin vél. Sérgeymsla íbúðar er í sameigninni. Garður sameiginlegur öllum íbúðum.

Endurbætur frá 2020 til júlí 2026:

- Baðherbergi var stækkað lítillega og flísalagt. - Eldhúsinnrétting, skápur á vegg og veggflísar endurnýjað

- Ný eldvarnarhurð við inngang íbúðar. - Eirrör hafa verið fjarlægð.

- Búið að fjölga innstungum í íbúðinni. - Fataskápar keyptir í svefnherbergið

- 2020 - Gluggar voru lakkaðar innan sem utan og húsið var málað að utan

- 2022 - Íbúð öll máluð

- 2024 -25 - Ný borðplata og bætt við „eyju“ sem er þó upp við vegginn

- 2025 - Vaskur á baðherbergi endurnýjaður og skipt um vatnslás ágúst 2025

- 2026 - Stofan var máluð og skipt um parket

ATH . Samkomulega er á milli aðila hvort ísskápur og þvottavél geti fylgt eigninni en bæði tækin voru keypt árið 2022

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

- Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.

- Ertu í söluhugleyðingum? Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat.

Heimasíða RE/MAX

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

· Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða) og 1,6% (ef lögaðilar)af heildarfasteignamati.

· Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.

· Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.

· Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk