Grandavegur 42

107 Reykjavík

Grandavegur 42
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
76 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
2017

Lýsing

Guðmundur Þór Júlíusson & Ástþór Reynir, löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu, kynna í einkasölu:

Glæsileg og einstaklega rúmgóð 2ja herbergja íbúð með sérmerktu bílastæði í bílakjallara við Grandaveg 42C, 107 Reykjavík.

Bókið skoðun hjá Gumma Júl í síma 858-7410 eða með tölvupósti á gj@remax.is

Um er að ræða fallega og vel skipulagða íbúð á 2. hæð í vinsælu hverfi. Íbúðin er skráð 76 fm samkvæmt HMS, þar af er 6,8 fm sérgeymsla í kjallara. Að auki eru rúmgóðar, 9,4 fm yfirbyggðar svalir sem skapa notalegt auka rými.

Nánari lýsing:

Forstofa: Rúmgóð forstofa með góðu skápaplássi.

Baðherbergi: Vandað baðherbergi, flísalagt að hluta með flísum frá Parka. HTH innréttingar með kvartsteini á borði. Walk-in sturta, handklæðaofn og upphengt salerni. Sérsmíðaður HTH skápur með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara ásamt skolvaski.

Eldhús og alrými: Eldhús, borðstofa og stofa mynda saman bjart og einstaklega rúmgott alrými. Vönduð HTH eldhúsinnrétting með kvartsteini á borðplötum. Ofn og spanhelluborð frá AEG.

Svalir: Úr alrými er gengið út á rúmgóðar, 9,4 fm yfirbyggðar svalir sem nýtast vel allt árið. Svalirnar eru ekki innifaldar í skráðum fermetrafjölda eignarinnar.

Svefnherbergi: Mjög rúmgott svefnherbergi með góðu skápaplássi.

Gólfefni: Parket á gólfum, að votrýmum undanskildum.

Gólfhiti: Íbúðin er með gólfhitastýringu.

Geymsla: Sérgeymsla í kjallara, 6,8 fm.

Bílastæði: Sérmerkt bílastæði í bílakjallara.

Hér er um að ræða glæsilega og vel búna eign með vönduðum innréttingum, góðu rými og yfirbyggðum svölum á eftirsóttum stað við Grandaveg.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir:

Guðmundur Þór Júlíusson, löggiltur fasteignasali, í síma 858-7410 eða gj@remax.is.

Ástþór Reynir, löggiltur fasteignasali, í síma 899-6753 eða arg@remax.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.