Friggjarbrunnur 42

113 Reykjavík

Ásett verð: 69.900.000 kr.

Friggjarbrunnur 42
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
79,8 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2018
Fermetraverð
875.940 kr.

Lýsing

LIND fasteignasala og Páll Konráð kynna í einkasölu: Glæsilega og bjarta 3ja herbergja, 79,8fm íbúð á EFSTU hæð í nýlegu lyftu fjölbýli ásamt stæði í bílageymslu á frábærum stað í Úlfarsárdal. Fallegt útsýni er úr íbúðinni með fjallasýn.

Eignin skiptist í forstofugang, stofu, eldhús, baðherbergi með þvottaaðstöðu, 2 svefnherbergi og geymslu innan íbúðar.

Eigninni fylgir bílastæði í bílageymslu.

Nánari upplýsingar gefur Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali, S:820-9322, pall@fastlind.is.

Nánari lýsing:

Forstofa: Með rúmgóðum fataskápum, parket á gólfi.

Eldhús: Opið inn í stofu, ljós innrétting, flísar á milli, ofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél, parket á gólfi.

Stofa: Björt og samliggjandi eldhúsi, parket á gólfum, útgengt út á stórar suður svalir með glæsilegu útsýni.

Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum fataskápum og parketi á gólfi.

Svefnherbergi: Rúmgott herbergi með góðum fataskápum, parket á gólfi.

Baðherbergi: Góð innrétting, hólf fyrir þvottavél og þurrkara, handklæðaofn, walk-in sturta, upphengt wc, flísar á gólfum og á veggjum að hluta.

Geymsla: Innan íbúðar.

Svalir : Gengið er út á frá stofu á rúmgóðar svalir, einstakt útsýni til suðurs.

Bílastæði: Merkt sérstæði í bílageymslu fylgir íbúð.

Sameign: Vagna- og hjólageymsla er sameign.

Um er að ræða bjarta og fallega eign í 8 íbúða lyftuhúsi staðsett í nýlegu og vinsælu hverfi í Úlfársdal. Stutt er í leikskóla- og grunnskóla, íþróttafélagið Fram, sundlaug, bókasafn/menningarmiðstöð ásamt kaffihúsi eru í göngufæri sem og falleg náttúra.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:

Páll Konráð, löggiltur fasteignasali, sími 820-9322, pall@fastlind.is

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.