Grjótasel 10

109 Reykjavík

Ásett verð: 162.000.000 kr.

Grjótasel 10
Tegund
Parhús
Stærð
319,6 m²
Herbergi
8
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
3
Byggingarár
1982
Fermetraverð
506.884 kr.

Lýsing

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali steingrimur@fastmos.is **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt og vel staðsett 319,6 m2 tengihús með bílskúr og aukaíbúð. Möguleiki er á að útbúa aðra aukaíbúð í eigninni. Timburverönd með heitum potti. Um er að ræða mjög gott fjölskylduhús á frábærum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Heimilt er að byggja glerskála yfir svalir.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

Nánari lýsing:

Aðalíbúð:

Forstofa með flísum á gólfi.

Eldhús með sérsmíðaðri viðar innréttingu frá Axis. Gott skápa- og vinnupláss. Borðkrókur er í eldhúsi. Parket á gólfi.

Hjónaherbergi er með fataskáp og parket á gólfi.

Svefnherbergi nr. 2 er með fataskáp og parketi á gólfi.

Svefnherbergi nr. 3 er með parketi á gólfi.

Baðherbergi er með sérsmíðaðri innréttingu frá Axis. Á baði er vegghengt salerni, baðkar og sturtuaðstaða. Flísar á gólfi og að hluta til veggjum.

Þvottahús er inn af forstofu.

Efri hæð er stórt og bjart rými en þar er góð borðstofa . sjónvarpsstofa og setustofa . Úr rýminu er útgegnt á stórar þaksvalir með fallegu útsýni.

Neðri pallur er rými með parketi á gólfi. Hægt að nýta á nokkra vegu

Neðri hæð (hægt er að loka á milli íbúðar og gera að íbúð með sérinngangi):

Forstofa með fatahengi.

Alrými er með parketi á gólfi.

Svefnherbergi er rúmgott með parketi á gólfi.

Baðherbergi er rúmgott með innréttingu, salerni og sturtuklefa. Flísar á gólfi.

Geymsla er á hæðinni sem notuð er í dag sem vinnuherbergi.

Aukaíbúð :

Eldhús með hvítri innréttingu. Í innréttingu er ofn, helluborð og vifta. Flísar á gólfi

Stofa/borðstofa er í opnu og björtu rými með parketi og flísum á gólfi.

Svefnherbergi er rúmgott og inn af því er fataherbergi.

Baðherbergi er með góðri innréttingu, salerni, sturtuklefa og tengi fyrir þvottavél. Flísar á gólfi og veggjum.

Bílskúrinn er með tveimur opnanlegum hurðum. Er skráður 45,5 m2, en hluti bílskúrs er nýtt sem íbúðarrými.

Verð. 162.000.000,-