Brekkutangi 11

270 Mosfellsbær

Ásett verð: 139.000.000 kr.

Brekkutangi 11
Tegund
Raðhús
Stærð
278 m²
Herbergi
7
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
2
Byggingarár
1976
Fermetraverð
500.000 kr.

Lýsing

CROISETTE kynnir í einkasölu vel skipulagt og rúmgott 278 fm raðhús á þremur hæðum við Brekkutanga 11 í Mosfellsbæ staðsett innarlega í botnlanga á rólegum stað. Þetta er virkilega góð eign fyrir stóra fjölskyldu og er vel staðsett í vinsælu og barnvænu hverfi. Stutt í Lágafellsskólaskóla, leikskóla, sundlaug, líkamsrækt og þjónustukjarna. Þakið var endunýjað 2023 og gluggar og gler í stofu á miðhæð var endurnýjað í haust 2026. Í húsinu eru núna fimm svefnherbergi en hægt er að breyta stóra herberginu í kjallaranum í tvö góð herbergi til viðbótar er rúmgott tómstundarherbergi í kjallara. Góður 25 fm bílskúr sem gengið er inní beint frá forstofu. Fyrir framan húsið er stórt leiksvæði með leiktækjum fyrir krakkana í hverfinu. Bílastæði fyrir allt að þrjá bíla fyrir framan húsið. Allar nánari upplýsingar veitir Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða kalli@croisette.is

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT.

Nánari lýsing miðhæð:

Forstofa: Rúmgóð forstofa með flísum á gólfi og rafgólfhitun. Innangengt í 25 fm bílskúr.

Eldhús: Fallegt eldhús með ljósum beykiskápum og mjög góðu skápaplássi. Útdraganlegar skúffur undir borði, pláss fyrir tvöfaldan ísskáp, spanhelluborð og gufugleypir, lýsing undir efri skápum, ljósar flísar á veggjum milli skápa. Flísar á gólfi. Rafgólfhitun er undir flísum í eldhúsi og í forstofu.

Stofa/Borðstofa: Stór og björt stofa með góðu borðstofuplássi, útgengt út í garð úr stofu. Skipt um glugga og gler haust 2026. Parket á gólfi, viðarpanill í lofti.

Gestasalerni: Flísar á gólfi, innrétting með frístandandi vask, salerni og hillur.

Bílskúr: Góður 25 fm bílskúr með epoxy flotuðu gólfi.

Nánari lýsing önnur hæð:

Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með góðum loftháum eldri skápum. Útgengt út á svalir. Vinyldúkur á gólfi.

Barnaherbergi I: Gott herbergi með vinyldúk á gólfi.

Barnaherbergi II: Ágætt herbergi með vinyldúk á gólfi. Útgengt út á norðursvalir. Hægt er að loka fyrir svalirnar og stækka herbergið. Epoxy á svalagólfi.

Skrifstofa/Barnaherbegi III: Gott herbergi sem er nýtt sem skrifstofa í dag. Útgengt út á svalir sem snúa í suður með epoxy á gólfi. Plastparket á gólfi.

Baðherbergi: Stórt baðherbegi með baðkari, salerni, innréttingu með skápum fyrir ofan og neðan vask. Flísar á gólfi.

Nánari lýsing kjallari:

Herbergi: Stórt og opið ca 32 fm rými sem er hægt að breyta í tvö um það bil jafn stór herbergi. Plastparket á gólfi.

Tómstundaherbergi: Stórt gluggalaust herbegi sem er nýtt sem fataherbegi. Yrði gott tómstundaherbergi fyrir stóra fjölskyldu. Plastparket á gólfi.

Geymsla: Góð og stór geymsla með tréhillum, flotað gólf.

Baðherbergi: Stórt baðherbergi með sturtu og gert er ráð fyrir gufubaði. Flísar á gólfi. Ekki er salerni.

Þvottahús: Stórt þvottahús, málað gólf, góð innrétting með vask og góðu skápaplássi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Annað:

Rafhleðslustöð: Til staðar er eigin rafhleðslustöð, 11kWh.

Garður: Timburpallur með skjólgirðinu til suðurs, gengið úr stofu á miðhæð.

Annað: Til staðar er þinglýst samkomulag í gegnum Húsfélagið Brekkutangi 1-15, um að hvert hús fyrir sig, sér um ákveðið viðhald á eigin fasteign. Alls eru 8 fasteignir í raðhúsalengjunni.

Fyrir liggur ástandsskýrsla frá MS lögnum um lagnirnar í eigninni. Seljandi hefur látið ástandsskoða eignina.

Nánari upplýsingar veita:

Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða kalli@croisette.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.

- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.

- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.