Lindarberg 8

221 Hafnarfjörður

Ásett verð: 235.000.000 kr.

Lindarberg 8
Tegund
Einbýlishús
Stærð
393,6 m²
Herbergi
8
Svefnherbergi
7
Baðherbergi
3
Byggingarár
1990
Fermetraverð
597.053 kr.

Lýsing

Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is og Betri Stofan kynna: Lindarberg 8, 221 Hafnarfjörður. Glæsilegt 8 herbergja (7 svefnh.) einbýlishús (tengihús) með innb.bílskúr (uþb. 50 m2) samtals 393,6 fm. Frábær staðsetning og útsýni yfir bæinn og fjörðinn, í hinu vinsæla Setbergslandi Hfj.

Gengið er inn í húsið á 2. hæð: Forstofur eru tvær, sitt hvorum megin á húsinu. Önnur forstofan er notuð sem fjölskyldu-inngangur og hin sem gesta-inngangur.

Fjölskyldu-megin er gott fataherbergi inn af forstofunni og innangengt er í bílskúrinn sem er rúmgóður og vel skipulagður.

Miðrýmið er með parket á gólfi, rúmgott eldhús og stofu þar sem er skemmtilegur arinn. Einnig er útgengi út á flísalagðar svalir með tröppum niður á stóran og rúmgóðan sólpall.

Á miðhæðinni eru tvö herbergi með parketi á gólfi og fataskápum. Gestasnyrting er með flísum á gólfum.

Gengið er upp stiga á 3.hæð: Stiginn er með gegnheilu parketi. Tvö stór herbergi, annað með parketi á gólfi og hitt með floti og er undir súð.

Gengið er niður á 1.hæð: Samskonar stigi og á 3. hæð. Komið er niður í skemmtilegt opið rými sem skiptist í tómstunda-stofu og sjónvarpsaðstöðu með útgengi út á sólpall. Á 1. hæð eru 3 svefnherbergi, tvö mjög rúmgóð og eitt þeirra með stóru fataherbergi og útgengt er þaðan út á sólpallinn. Stórt glæsilegt baðherbergi með flísum á gólfi. Baðkar og sturta sem grafið hefur verið inn í bergið, virkilega skemmtileg spa stemmning þar. Útgengi er frá baðherbergi og út á sólpall. Einnig er glæsilegt ný-uppgert þvottahús með baðherbergi þar sem flísar eru á veggjum og gólfi.

Garður er mjög fallegur með háum trjám og glæsilegri hellulögn. Tvö hellulögð bílaplön eru við húsið. Einnig eru stæði á móti húsinu fyrir 6-7 bíla.

Húsið er á tveimur fastanúmerum samkvæmt þjóðskrá Íslands.

Nánari upplýsingar veitir: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.